Skoðun

Dökk heims­mynd Jóhanns Páls

Hildur Sverrisdóttir skrifar

Í ræðustól Alþingis á dögunum stóð Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og hélt því blákalt fram að ríkisstjórnarflokkarnir héldu samstarfi sínu gangandi einvörðungu til að tryggja sér háa styrki úr vösum skattgreiðenda, sem koma til greiðslu í janúar. Góðar samsæriskenningar geta verið safaríkar og spennandi en verra er þegar þær standast ekki minnstu skoðun.

Sjálfstæðisflokkurinn vill afnema ríkisvæðingu stjórnmálaflokka

Enginn þarf að leita langt eða lengi að afstöðu Sjálfstæðisflokksins til ríkisstyrkja til stjórnmálaflokka. Flokkurinn hefur lengi talað fyrir breytingum á fjármögnun stjórnmálaflokka, þar á meðal algjöru afnámi opinberra styrkja.

Tilefnið er að lög um stjórnmálaflokka frá árinu 2006 sníða stjórnmálaflokkum þröngan stakk í samhengi við fjármögnun með fjárframlögum frá einstaklingum og fyrirtækjum. Þess í stað eru opinberir styrkir nú þeirra helsta tekjulind og opinber framlög til stjórnmálaflokka margfaldast frá setningu laganna. Hefur Sjálfstæðisflokkurinn ítrekað lýst því yfir að endurskoða þurfi þetta fyrirkomulag.

Á síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins ályktaði fundurinn að afnema skyldi opinbera styrki til stjórnmálaflokka og hækka hámarksframlag annarra aðila í staðinn. Þessari ályktun hafa þingmenn flokksins fylgt eftir í verki. Hefur Diljá Mist Einarsdóttir t.a.m. ítrekað lagt fram frumvarp sem miðar að því að draga úr opinberum styrkjum til stjórnmálaflokka og auðvelda þeim sjálfstæða tekjuöflun. Í því frumvarpi er einnig lagt til að þröskuldurinn til að hljóta framlag frá hinu opinbera skuli hækkaður úr 2,5% í 4% atkvæðamagn. Þetta tryggir að flokkarnir verði áfram bundnir af skýrum reglum um gagnsæi, og framlög frá óþekktum aðilum verða áfram bönnuð.

Pólitískur ásetningur og dylgjur

Hugarórar um að ríkisstjórnarsamstarfið byggi á von umfjárframlög eiga sér væntanlega rætur í pólitískum ásetningi fremur en því að þingmaðurinn trúi þessu sjálfur. Sú heimsmynd að flokkarnir sem stýra landinu geri það í þeim eina tilgangi að fá fjárgreiðslur frá ríkinu er dökk og hryggileg. Það vona ég innilega og trúi ekki að nokkur flokkur vinni út frá slíkri hugmyndafræði.

Stjórnmálaflokkar eiga að hafa möguleika á að axla ábyrgð á eigin fjármálum með sjálfstæðri fjármögnun, án þess að styrkir frá ríkinu séu þeirra helstu tekjulind. Opinber fjárframlög eiga ekki og ættu ekki að vera stjórnmálaflokkum haldreipi, öllu heldur þarf að hvetja til aukinnar ábyrgðar og gegnsæis.

Eitt er allavega víst, Sjálfstæðisflokkurinn óttast ekki kosningar, nú sem endranær, hvenær sem þær kunna að verða haldnar.

Höfundur er þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×