Skoðun

Hvers vegna ekki að kjósa strax?

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins sagði fyrir síðustu kosningar að öllu máli skipti hvort eftir kosningar tæki við sundurlaus samtíningur margra flokka eða öflug ríkisstjórn sem gæti tekist á við stór verkefni og hefði burði til að leysa áskoranir til framtíðar. Í sömu grein sagði ráðherrann að yrði Sjálfstæðisflokkurinn ekki við völd myndi verðbólgan fara úr öllu valdi og afborganir á húsnæðislánum stóraukast.

Eflaust hefur kjósendum Sjálfstæðisflokksins ekki grunað að ráðherrann færi með öfugmæli og að við tæki sundurlaus samtíningur margra flokka, Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna – þar sem verðbólga færi upp úr öllu valdi og húsnæðislánin líka.

Hvers vegna að kjósa í vor? Að þessu spurði forsætisráðherra um daginn þegar vantraustsyfirlýsing Vinstri grænna í garð stjórnarsamstarfsins var borin undir hann. Þá sagði ráðherrann að hann hefði frekar einfalda sýn á málið. „Hún er sú að við höfum skyldu til þess að vinna að framgangi okkar mála, sem stjórnin hefur komið sér saman um.“ Hann sagði seinna í viðtalinu: „Hitt er miklu meiri spurning, hvort að ríkisstjórn hefur burði til þess að klára verkefnin sín og vinna í þágu þjóðarinnar.“ Nefndi ráðherrann í því samhengi að framgangur í efnahagsmálum, útlendingamálum og orkumálum ætti að ráða úrslitum um það hvenær kosið yrði.

Vandinn við orð forsætisráðherra er sá að þjóðin setur hvorki útlendinga né orkumál í forgang. Það er skýrt í öllum könnunum þar sem kjósendur eru beðnir um að forgangsraða málaflokkum. Þeir treysta augljóslega ekki ríkisstjórninni til að takast á við verðbólguna sem hún hefur leyft að grassera í að verða heilt kjörtímabil.

Ég spurði forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær hvers vegna hann vildi ekki kjósa núna strax. Svar hans var að ef ríkisstjórn með eða án Sjálfstæðisflokksins, hvaða ríkisstjórn sem væri, sem ekki næði árangri í þeim stefnumálum sem brýnast brynnu á þjóðinni þá þyrfti hún að „fara til kjósenda og fá nýjan dóm og láta úthluta upp á nýtt“.

Þarna er ég sammála ráðherranum. Það er ótækt að óvinsælasta ríkisstjórn í manna minnum sitji við völd þegar almenningur þarf á öflugri og samhentri ríkisstjórn að halda sem setur húsnæðismál, heilbrigðismál og baráttuna við verðbólguna í forgang. Stjórnarliðar vilja ekki þessa ríkisstjórn lengur og fólkið í landinu er komið með meira en nóg af henni. Eftir hverju er verið að bíða?

Höfundur er þingmaður Pírata í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×