Skoðun

Opið bréf til Einars Þor­steins­sonar frá kennurum í Haga­skóla

Arna Sif Ásgeirsdóttir, Drífa Guðmundsdóttir og Kolbeinn Ari Hauksson skrifa

Ágæti borgarstjóri Einar Þorsteinsson.

Eins og þér ætti að vera kunnugt þá vinna kennarar undir talsverðu álagi – það er eðli starfsins. Kennarastarfið hefur tekið þó nokkrum breytingum. Þú ættir að þekkja starfið og kröfur þess, sem okkar æðsti yfirmaður. Við trúðum því að þú stæðir með okkur og skildir og þekktir störf okkar. Það tók því nokkuð á að hlusta á orðræðu þína á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna. Okkur langar því að útskýra hvað starfið gengur út á:

Við störfum í „skóla fyrir alla“. Vellíðan nemenda er í fyrsta sæti hjá kennurum - ef nám á að fara fram þá verður nemendum að líða vel. Að þessu vinnum við markvisst á hverjum degi. Við vinnum gegn hatursfullri orðræðu, einelti og ofbeldi. Við reynum að leiðbeina börnunum, hvað varðar snjalltækjanotkun og um góð samskipti. Við sættum okkur ekki við að nokkrum einasta nemanda líði illa.

Aðgengi foreldra að kennurum hefur stóraukist og eðlilega eru kröfur þeirra í okkar garð miklar. Við eigum í daglegum samskiptum við marga foreldra. Veitum hverjum og einum nemanda persónulega þjónustu. Við reynum að taka tillit til allra og skiljum engan eftir. Okkur er umhugað um börnin og leggjum rækt við velferð þeirra. Okkur þykir vænt um starfið okkar og vonum að það endurspeglist í líðan nemendanna.

Kennarar eiga að baki 5 ára háskólanám, þar sem þeir sérhæfa sig á ýmsum sviðum. Við útbúum námsefni í mörgum útfærslum sem eiga að henta hverjum nemanda. Hver kennari sinnir um 200 nemendum. Í Hagaskóla eru oft bekkir með hátt í 30 nemendum og þar eru margir með sérstakar þarfir og aðrir með annað móðurmál en íslensku. Vissir þú að 15% nemenda á Íslandi eiga báða foreldra með annað tungumál en íslensku?

Þú minnist á aukinn undirbúningstíma. Við kennum á unglingastigi og könnumst ekki við þennan aukna tíma sem þú talar um. Undirbúningstími er fyrst og fremst ætlaður fyrir kennslu, yfirferð verkefna og upplýsingaöflun. Þessi afmarkaði tími fer oft í fundarhöld vegna nemendamála sem og innleiðingu ýmissa breytinga. Það gefur því auga leið að kennarar eyða ófáum kvöldum og helgum í yfirferð og undirbúning sem hefði átt að eiga sér stað á skilgreindum vinnutíma.

Vissir þú Einar að við í Hagaskóla, eins og svo ótal margir í skólum borgarinnar, höfum verið á hrakhólum í nokkur ár vegna myglu og skorts á viðhaldi húsnæðis? Við höfum kennt í kirkjukjallara, ónýtu hóteli, bíósölum, frístundaheimili, skrifstofuhúsnæði, í skóla í Grafarvogi, í íþróttahúsnæði svo eitthvað sé nefnt. Allt til að geta verið til staðar fyrir nemendur okkar.

Við vonum innilega að þetta veiti þér örlitla innsýn inn í okkar veruleika og skilning á starfinu okkar.

Einfaldast væri Einar að þú kæmir bara að kenna!

Höfundar eru kennarar í Hagaskóla. Greinin er skrifuð fyrir hönd allra kennara í skólanum. 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×