Skoðun

Þankar um fram­tíð landsins okkar

Árný Björg Blandon skrifar

Nú þegar kosningar eru framundan, reikar hugurinn í gegnum síðastliðinn sjö ár og jafnvel enn lengra aftur í fortíðina.

Í mörg ár, hef ég horft á eftir fólki sem ég þekki flytja af landi brott vegna fjárhagsstöðu sinnar, flutt frá fjölskyldu og vinum til að finna annað land sem er ódýrara og betra að búa í.

Vextirnir voru að sliga mörg þeirra og matarinnkaupin voru farin að þrengja pyngjuna um of. Jafnvel fiskurinn sem var alltaf ódýr og hollt val í matinn er orðinn fulldýr í dag. Margt af þessu fólki eru eldri borgarar, eiga mörg til dæmis ekki feita lífeyrissjóði.

Það er svo víða pottur brotinn í landinu okkar og við vitum öll að ríkisstjórnin hefur ekki verið að standa vörð í kringum þau sem strita og standa höllum fæti í þjóðfélaginu. Það er alveg hægt en er bara ekki gert og við skiljum þetta engan veginn.

Og nú er það stóra spurningin.

Ætlum við að kjósa svona stjórn yfir okkur aftur, stjórn sem er fallin í dag löngu fyrir lok kjörtímabilsins. Við hljótum að hafa vitkast. Hljótum að vilja gagngerar breytingar. Sumt fólk hefur alltaf kosið „sinn flokk“ eins og kynslóðirnar á undan þeim gerðu líka. Alveg sama hvað á undan gékk.

Ég man þegar ég komst á kosningaaldur, þá setti fjölskylda mín þá pressu á mig að nú yrði ég að kjósa og „kjósa rétt“. Annars fengi ég ekki far á kjörstað. Ég, vitandi ekkert um stjórnmál, þáði farið og kaus flokkinn sem mér var sagt að kjósa. Mjög auðvelt, bara eitt strik í kladdan. En hvað var ég að kjósa yfir mig og mína þjóð? Hvað ætlum við að kjósa yfir okkur 30. nóv. 2024?

Kjósum með hjartanu, því hjartað slær fyrir réttlætið. Verum vitur og forðum okkur undan stjórnun og græðgi. Kjósum ríkisstjórn sem virkar í nærkomandi framtíð. Látum kosningaloforðin ekki blekkja okkur, þau eiga það til að bregðast og verða að engu. Gleymum því ekki núna.

Kjósum þannig að fólkið sem hefur flúið landið, langi til að koma aftur heim. Að börnin okkar búi við öryggi, að ofbeldi líði undir lok. Að hlúð sé að þeim sem þurfa þess.

Kjósum kærleikann. Ef hann er með í för, þá fer allt vel.

Höfundur vinnur við þýðingar og yfirlestur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×