Skoðun

Opið bréf til for­eldra í Drafnarsteini

Halldóra Guðmundsdóttir skrifar

Kæru foreldrar

Svona byrja ég alla pósta til ykkar. Það eru ekki einungis innantóm orð, heldur eruð þið mér sannarlega kær. Samskipti okkar í skólanum eru mér afar mikilvæg og ég er mjög stolt af ykkur sem hóp og hve samfélagið okkar er fallegt. Þar finnst mér ríkja mikið traust og almenn ánægja. Starfsmannahópurinn er líka góður, þar ríkir góður andi, og þegar þetta tvennt fer saman er það iðulega uppskrift að ánægðum og glöðum börnum. Það skiptir öllu máli. Ánægt barn lærir.

Þá skal engan undra að þið séuð hissa og hreinlega sár yfir því að heyra að það sé yfirvofandi verkfall í skólanum.

Af hverju við?

Það er einmitt spurningin sem ég spurði sjálfa mig og við í skólanum. Þegar við vorum spurð hvort við værum til í að vera sá leikskóli í borginni sem tæki þátt í þessu verkfalli, hugsaði ég strax til barnanna og til ykkar, kæru foreldrar, og sömuleiðis til starfsmannahópsins. Og vissulega varð sú hugsun líka víðfeðmari, af hverju ekki við?

Það er nefnilega þannig að ósjaldan er það vilji manns að einhver annar taki slaginn, að einhver annar leggi það á sig, fórni sér fyrir málstaðinn. Þurfum við ekki að vera til fyrirmyndar? Við erum að lifa sögulega tíma. Allir kennarar, á öllum skólastigum, standa saman og biðja þess eins að það verði farið eftir því sem var lofað og undirritað fyrir einum átta árum.

Ég hugsaði til barnanna, það eru þau sem ég brenn fyrir í mínu starfi alla daga, og hef gert í ein tuttugu og fimm ár í sama skólanum. Á þeim tíma hefur ekki bara skólinn stækkað og breyst, heldur hefur samfélagið jafnframt breyst, heimsfaraldur haft sín áhrif, og fagmenntuðum fækkað. Mér líður eins og kerfið sé að molna innan frá.

Þegar stjórnendur í leikskólum ræða saman eru vandamálin þau sömu, mikil starfsmannavelta verður til þess að þeir sem starfa í skólanum eru sífellt að setja nýtt fólk inn í starfið, það þarf svo sannarlega, því að flestir sem koma nýir inn eru ekki menntaðir í starfið, hafa jafnvel aldrei unnið með börnum áður. Þá fer að sjáfsögðu mikil orka í það, í stað þess að sú hin sama orka fari í að kenna börnunum. Sérstaklega á þetta við um á fyrsta skólastiginu, þ.e. leikskólans,Þar sem almenningsálitið er á þann veg að hver sem er geti sinnt þessu starfi. Það er af og frá. Ef farið væri eftir lögum um leikskóla, og tveir þriðju hluti starfsmanna væru kennarar, og starfsmannavelta væri ekki svona mikil, þá væri öllu meiri friður til kennslu, þá væri meira til að byggja ofan á, til að sinna með sóma starfsáætlunum, námskrá, stefnum, og öllu því sem okkur ber og langar vissulega til að sinna. Hvernig samfélag viljum við?

Við göngum þannig stolt inn í verkfallsboðun og verkfall, og verðum þau sem sinna því, fyrir kennara, og fyrir öll börn í nútíð og framtíð.

Höfundur er leikskólastjóri í leikskólanum Drafnarsteini




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×