Skoðun

Er ferða­þjónusta út­lendinga­vanda­mál?

Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar

Píratar hafa nú greint meintan útlendingavanda og telja það vera ferðamanninn sem sækir okkur heim. Erlendur ferðamaður sem ekur um landið, gistir á hótelum, borðar góðan mat og sækir afþreyingu sem í boði er á hverjum stað. Það er útlendingavandamálið holdi klætt. Þá vitum við það og Píratar vilja leggja aukinn skatt á greinina.

Hvað kallast þá íslenskur ferðamaður sem ekur sama hring, borðar sama mat, gistir á hótelum og skoðar söfn?

Mikilvægi ferðaþjónustu á landsbyggðinni

Við höfum nokkrar meginstoðir undir efnahagslífi landsins, ein af meginstoðum þess er ferðaþjónusta. Ferðaþjónustan er ein af stærstu atvinnugreinum á Íslandi og mikilvægur drifkraftur hagvaxtar og aukinna lífsgæða. Sá mikli og stöðugi gjaldeyrisstraumur sem ferðaþjónustan skapar er mikilvægur litlu og opnu hagkerfi á borð við okkar. Hann styður við gengi krónunnar og stuðlar þannig að lægri verðbólgu en ella.

Ferðaþjónusta hefur orðið ein helsta stoð atvinnulífs á landsbyggðinni og haft víðtæk áhrif á efnahag, samfélag og umhverfi. Í kjölfar aukinna ferðamanna hefur atvinnusköpun aukist, sérstaklega á sviði þjónustu, afþreyingar og gistiþjónustu, sem styrkir búsetuskilyrði á svæðum þar sem hefðbundin störf hafa dregist saman. Ferðaþjónustan hefur einnig hvatt til nýsköpunar og stuðlað að aukinni fjárfestingu, meðal annars í innviðum og samgöngumannvirkjum sem gagnast bæði íbúum og gestum.

Því hefur ferðaþjónustan bætt búsetuskilyrði um allt land og verið góð viðbót í dreifðum byggðum landsins. Ferðaþjónustan byggir á sögu okkar og menningu. Við uppbyggingu ferðaþjónustu hefur aukist framboð af þjónustu og afþreyingu fyrir íbúa svæða og er því um að ræða mikið byggðamál. Lítil og meðalstór fyrirtæki í eigu heimafólks á hverjum stað skila ábata inn í samfélögin og skapa grundvöll til frekari uppbyggingar þjónustu og annarrar starfsemi á svæðinu.

Standa við skatta og skyldur

Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki, bæði lítil og stór, greiða skatta og skyldur líkt og önnur fyrirtæki. Greiddur er virðisaukaskattur af ferðaþjónustu, líka af rútuferðum og því ekki rétt að halda fram að atvinnugreinin skili ekki arði inn í þjóðarbúið og það þurfi sérstaklega að huga að auknum álögum á greinina. Hærri skattur þýðir hærra gjald fyrir þjónustuna sem skilar sér í hærri verðbólgu.

Auðlindin er viðkvæm

Við getum þó verið sammála um að mikil umferð ferðamanna getur valdið álagi á innviði og náttúru landsins. Á viðkvæmum svæðum geta skaðleg áhrif ferðaþjónustu verið áberandi, meðal annars vegna slits á gönguleiðum en einnig með auknum ágangi á dýralíf og vistkerfi. Íslendingar eru líka á ferð um landið til að njóta og nýta. Til að hámarka ávinning ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni er mikilvægt að stýra uppbyggingu hennar með sjálfbærni og velferð íbúa að leiðarljósi, ásamt því að verja náttúruauðlindir og menningarverðmæti. Með góðu skipulagi getur ferðaþjónustan áfram verið drifkraftur atvinnu,- og menningarlífs um allt land.

Höfundur er þingmaður og í framboði fyrir Framsókn í NV.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×