Skoðun

Fastur heimilis­læknir sem þekkir þig

Kristrún Frostadóttir skrifar

Samfylkingin ætlar að laga heilbrigðiskerfið. Við getum það. Ekki með plástrum og skyndilausnum – heldur með því laga grunninn.

Það er eitthvað að þegar fólk þarf að bíða svona lengi á bráðamóttökunni og ástandið versnar ár frá ári. Þegar eldra fólk er látið búa frammi á spítalagangi eftir að hafa stritað alla ævi – því það fær ekki þjónustu við hæfi. Þegar 50% Íslendinga eru með fastan heimilislækni en yfir 95% í Noregi.

Við ætlum að laga þetta

Okkur er alvara. Þess vegna héldum við 40 opna fundi um heilbrigðismál í fyrra með fólkinu í landinu – og annað eins með fólkinu á gólfinu og öðrum sérfræðingum. Til að teikna upp plan og vera tilbúin til verka í nýrri ríkisstjórn.

„Fastur heimilislæknir sem þekkir þig“ er efst á blaði af fimm þjóðarmarkmiðum Samfylkingarinnar í heilbrigðismálum. Ástæðan er einföld: Þetta kom upp á hverjum einasta fundi sem við héldum með fólkinu í landinu um heilbrigðismál, og fólkið sem vinnur á gólfinu er sammála.

Það veldur fólki óöryggi að vera ekki með fasta tengingu við heilbrigðiskerfið. Og það er óhagkvæmt. Rannsóknir sýna að innlagnir á sjúkrahús eru 30% fleiri hjá þeim sem hafa ekki fastan heimilislækni.

Staðreyndin er sú að grundvallaratriði í góðu heilbrigðiskerfi er fastur heimilislæknir sem þekkir þig, þína fjölskyldu og þína sögu.

Nýtt upphaf með Samfylkingu

Með öruggum skrefum getum við náð þjóðarmarkmiði um fastan heimilislækni fyrir alla landsmenn á 10 árum – en á fyrsta kjörtímabili setjum við langveikt fólk og eldri en 60 ára í forgang. Sömuleiðis viljum við þverfaglegt „heimilisteymi“ á heilsugæslu því maður þarf ekki alltaf tíma hjá lækni.

Í útspilinu okkar Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum er að finna örugg skref að þessu marki. Þar má nefna ýmsar aðgerðir sem við viljum ráðast í til að styrkja heimilislækningar og skapa hvata til fastráðningar á heilsugæslum um land allt – svo sem með því að fjármagna sérnám í heimilis- og héraðslækningum og fella niður námslán hjá læknum sem ráða sig til lengri tíma á svæðum þar sem læknaskortur er viðvarandi.

Við getum ekki haldið áfram á sömu braut í heilbrigðismálum. Eftir 11 ára stjórn Sjálfstæðisflokksins er núna tækifæri til að velja nýtt upphaf með Samfylkingu.

Við erum ekki bara með plan heldur líka nýjan verkstjóra. Alþjóð veit að Alma Möller gæti gengið inn í heilbrigðisráðuneytið og verið tilbúin til þjónustu frá fyrsta degi – fáum við traust í kosningunum 30. nóvember.

Höfundur er formaður Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×