Skoðun

„Það sé ykkur til fæðu“ - hug­leiðing um jóla­mat

Árni Stefán Árnason skrifar

Ég hef lengi haft þessi skrif í kollinum því það er erfitt að sannfæra og rökstyðja við nokkurn mann orðið það sem mælir gegn neyslu kjötafurða, jafnvel þó kvalræði dýranna blasi við í öllum kjötkælum verslana þar sem þau liggja sundurbútuð í plastumbúðum skreyttum af flinkum hönnuðum svo þau rati í maga landsmanna. Mér finnst gaman og sérstaklega áhugavert að sækja í klassískar röksemdir gegn dýraáti, sem oft eru aldagamlar en í góðu gildi.

Þegar ég rak augun í merk skrif Óskars Valtýssonar hér í skoðun á visir.isHamborgarhryggur minnst viðeigandi jólamatur ákvað ég að láta slag standa og birta margra mánaða gamla hugleiðingu mína. Við Óskar þekkjumst í áratug í gegnum dýraverndina og er hann með skörpustu, beittustu og rökföstustu pennum á þeim vettvangi.

,, Sjá , ég gef ykkur alls konar sáðberandi jurtir á allri jörðinni og alls konar tré, sem bera ávöxtu með sæði í. Það sé ykkur til fæðu.

Þannig hljóðar merkileg setning í fyrstu Mósebók, sem lýsir sköpun heimsins. Þarna er verið að vísa til þess að Guð hafi skapað jurtir o.fl. sem vex úr jörðinni fyrir manninn til að nærast á. - Undarlegt nokk en hinn kristni heimur hefur ekki haft burði til að skilja þessa sáraeinföldu yfirlýsingu og dýradráp til manneldis hefur aldrei verið meira.

Hvergi nokkursstaðar í hinum heilaga riti er sagt að Guð hafi skapað dýrin til að eta þau. Margir í hinu heilaga riti og síðar allt til dagsins í dag klikkuðu á þessum fyrirmæli þ.á.m. sjálfur bróðir minn og mesti áhrifavaldur mankynssögunnar, Jesú bróðir besti. Hann var ekki fullkominn greyið frekar en ég en þræl göldróttur þegar hann breytti vatni yfir í vín. Ég öfunda hann svolítið af þeim hæfileika. Það er alvöru áhrifavaldur að breyta vatni í vín og fá heila ríkisstjórn (lærisveinana) til drykkju með sér. Það hefur engin nútíma áhrifamaður með trilljón fylgjendur á samfélagsmiðlum leikið eftir honum. Máske taka þeir nú upp hanskann fyrir dýrin fyrir þessi jól.

Hvet alla landsmenn til að kveðja kjötátið um næststærstu hátíð kristinna manna og eta með góðri samvisku.

Höfundur er dýraverndarlögfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×