Skoðun

Einka­fram­takið í sinni fegurstu mynd

Vilhjálmur Árnason skrifar

Ísland er land óþrjótandi tækifæra. Við erum rík af bæði auðlindum og hæfileikaríkum einstaklingum - sem eiga sinn þátt í framúrskarandi lífskjörum þjóðarinnar. Við getum verið stolt af atvinnuvegunum sem byggðir hafa verið upp hér á landi af framtakssömum einstaklingum, hvort sem um er að ræða íslenskan iðnað, ferðaþjónustu, sjávarútveg eða hugvitið, svo eitthvað sé nefnt.

Ferðaþjónusta eykur lífskjör og lífsgæði

Sjálfstæðisflokkurinn hefur góða sögu að segja um ferðaþjónustuna enda hefur vöxtur greinarinnar eflt íslenskt efnahagslíf til muna og segja má með sanni að greinin sé einkaframtakið í sinni fegurstu mynd. Ferðaþjónustufyrirtæki hafa sprottið upp hringinn í kringum landið síðastliðin ár og verið lyftistöng í samfélögum sem áður bjuggu við samdrátt. Þetta þekkjum við í Suðurkjördæmi manna best. Þessi sömu fyrirtæki hafa hins vegar því miður þurft að lifa við síendurteknar fyrirvaralausar hækkanir á álögum, sköttum og gjöldum. Það er óásættanlegt.

Háir skattar draga úr einkaframtakinu

Skattar á fólk og fyrirtæki eru, ef eitthvað er, of háir á Íslandi. Til lengri tíma þurfum við sem samfélag að horfa til þess að skattar á Íslandi geti lækkað. En hvers vegna? Háir skattar eru til þess fallnir að draga þrótt úr einkaframtakinu, rýra samkeppnisstöðu á alþjóðamörkuðum og leggja stein í götu verðmætasköpunar. Þegar breytingar eru gerðar á sköttum og gjöldum með nær engum fyrirvara íþyngir það íslenskum fyrirtækjum enn frekar. Slíkar breytingar leggjast svo enn fremur þyngra á lítil og meðalstór fyrirtæki. Þó í öllum tilvikum séu þær slæmar.

Verðmætasköpun ferðaþjónustunnar er langt frá því að vera sjálfsögð og er greinin í raun enn að slíta barnsskónum þó vel hafi gengið hingað til og greinin skapi nú þriðjung útflutningstekna landsins. Það þarf sérstaklega að gæta að skattlagningu á atvinnugreinar líkt og ferðaþjónustu sem eru í uppbyggingarfasa og á viðkvæmu stigi enda á ríkið allt sitt undir velgengni einstaklinga og fyrirtækja þegar kemur að tekjuöflun.

Stöðugleiki í leikreglum ferðaþjónustunnar

Við Sjálfstæðismenn viljum viðhalda og treysta þá upplifun sem er að koma til Íslands, við erum að bjóða upp á einstaka þjónustu. Því leggur Sjálfstæðisflokkurinn nú líkt og áður áherslu á stöðugleika í leikreglum ferðaþjónustunnar sem og atvinnulífsins alls. Í því liggur eitt mesta sóknarfæri íslensks atvinnulífs til lengri tíma.

Framúrskarandi lífskjör þau sem hér fyrirfinnast byggir þjóðin á samkeppnishæfni útflutningsstoða sinna, þeim verður einfaldlega að tryggja fyrirsjáanleika. Sjálfstæðisflokkurinn vill að það sé eftirsóknarvert að stofna og reka fyrirtæki á Íslandi. Til þess þarf stöðugleika, hóflega skattheimtu og einfaldar leikreglur.

Höfundur er ritari Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×