Handbolti

Þýsk kona fylgt Ís­landi um allt: „Stálu hjarta mínu“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Heidrun Oesch féll fyrir Íslandi og stuðningsmönnum karlalandsliðsins í fótbolta á EM 2016. Hún hefur fylgt íslenskum landsliðum eftir síðan
Heidrun Oesch féll fyrir Íslandi og stuðningsmönnum karlalandsliðsins í fótbolta á EM 2016. Hún hefur fylgt íslenskum landsliðum eftir síðan Vísir/VPE

Hin þýska Heidrun Oesch hafði enga tengingu við Ísland þegar hún heillaðist af karlalandsliðinu í fótbolta á EM 2016 og stuðningssveit liðsins. Hún mætir á landsleiki eins og hún getur og er nú mætt á EM kvenna í handbolta.

Valur Páll Eiríksson skrifar frá Innsbruck

Heidrun var á meðal stuðningsmanna íslenska liðsins sem sáu leik stelpnanna okkar við Úkraínu á EM kvenna í handbolta í Innsbruck í gærkvöld. 

„Ég hef verið stuðningskona allra íslenskra landsliða frá því á EM 2016. Ég fylgist mikið með bæði fótbolta og handbolta. Ég fer á alla leiki sem ég get þegar tími og vinna leyfir,“ sagði Heidrun þegar hún var tekin tali fyrir leik gærkvöldsins.

En hvað var það sem heillaði svona við Ísland?

„Alla ævi hef ég fylgst með fótbolta og ég sá stuðningsmenn Íslands á EM í Frakklandi og þeir voru frábærir. Þeir stálu hjarta mínu. Síðan þá hef ég farið til Íslands þegar ég get og þegar mót eru nærri Þýskalandi mæti ég ef ég get,“ segir Heidrun sem hefur farið á þónokkra leiki með íslenskum landsliðum.

„Ég sá leiki hjá karlalandsliðinu í handbolta í Munchen í júní og ætla að fara til Sviss að sjá kvennalandsliðið í fótbolta næsta sumar,“ segir Heidrun sem sá kvennalandsliðið í handbolta í fyrsta sinn í gær.

„Ég komst ekki til Noregs í fyrra þar sem ég fékk ekki frí frá vinnu. Núna er fyrsti leikurinn og ég vona að þær vinni,“ sagði Heidrun sem fékk ósk sína svo sannarlega uppfyllta.

Ísland vann 27-24 sigur á Úkraínu í gærkvöld, fyrsta sigur landsliðsins á Evrópumóti. Fram undan er úrslitaleikur við Þýskaland á þriðjudag um það hvort liðanna fer í milliriðil í Vín.

Landsliðinu verður fylgt eftir hvert fótmál hér í Innsbruck fram að leik þriðjudagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×