Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Fyrsta gullið úr grænlenskri gullnámu, sem Íslendingar standa fyrir, er komið úr gullkvörninni. Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri málmleitarfélagsins Amaroq, segir þetta ólýsanlega tilfinningu eftir tíu ára undirbúningsstarf. 28.11.2024 22:42
Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Grænlendingar fagna í dag nýjum alþjóðflugvelli í Nuuk. Opnun vallarins er sögð marka þáttaskil í samgöngum Grænlands við umheiminn og var almenningi boðið til hátíðar með tónleikum og veisluhöldum í dag og flugeldasýningu í kvöld. 28.11.2024 21:42
Þjóðvegurinn upp í Þjórsárdal færist vegna Hvammsvirkjunar Inntakslón sem myndast vegna fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar veldur því að færa þarf Þjórsárdalsveg á um fimm kílómetra löngum kafla. Ný veglína er sýnd á myndbandi sem Landsvirkjun og Vegagerðin hafa kynnt íbúum nærsveita. 27.11.2024 21:21
Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins Boðað hefur verið sannkallaðrar þjóðhátíðar í Nuuk á fimmtudag með tónleikum, veisluhöldum og flugeldasýningu. Tilefnið er opnun nýs alþjóðaflugvallar og fyrsta lending stórrar farþegaþotu í höfuðstað Grænlands. 26.11.2024 18:15
Fyrsta flug þotu sem markar þáttaskil í sögu Icelandair Fyrsta Airbus-þota Icelandair fór í sitt fyrsta reynsluflug í Hamborg í gær. Stefnt er að því að flugvélin komi til landsins 3. desember og hefji áætlunarflug viku síðar. 20.11.2024 20:24
Krefst undanbragðalausra skýringa á því hversvegna Vestfirðir voru snuðaðir Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður Vestfjarða og Norðvesturkjördæmis, krefst þess að samgönguyfirvöld skýri það undanbragðalaust fyrir komandi alþingiskosningar hversvegna vegaframkvæmdir í Gufudalssveit og á Dynjandisheiði stöðvuðust og hvort fjármunir, sem Alþingi hafði ráðstafað í verkin, hafi verið fluttir í Hornafjarðarfljót. 20.11.2024 11:50
Airbus-þota Icelandair flaug í fyrsta sinn í dag Fyrsta Airbus-þota Icelandair fór í sitt fyrsta reynsluflug frá Airbus-verksmiðjunum í Hamborg í Þýskalandi í dag. Flugvélin, af gerðinni Airbus A321neo, hóf sig til flugs laust eftir hádegi að staðartíma. 19.11.2024 23:55
Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður Fern ný jarðgöng verða undirbúin, Fossvogsbrú sett af stað og lykilvegir byggðir upp á Vestfjörðum og á Norðausturlandi. Breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi frestast hins vegar, samkvæmt samgönguáætlun næsta árs, sem kynnt var í dag. 19.11.2024 21:21
Ný brú á Þjórsá talin kosta um fimmtung af verði Ölfusárbrúar Ný Þjórsárbrú við Árnes verður boðin út fljótlega eftir áramót. Hún mun ásamt tengivegum sennilega kosta vel innan við fjórðung af því sem Ölfusárbrúin kostar. 19.11.2024 07:07
Fyrsta skóflustunga tekin þótt enn eigi eftir að hanna brúna Ein stærsta fréttin frá lokadegi Alþingis í dag er að smíði nýrrar Ölfusárbrúar var tryggð, verkefni sem áætlað er að kosti 17,9 milljarða króna. Skrifað verður undir verksamning á miðvikudag og drifið í að taka fyrstu skóflustungu, þótt enn eigi eftir að hanna brúna og langt sé í upphaf jarðsvegsvinnu. 18.11.2024 21:43