Úkraína Hryllilegt að sjá afleiðingarnar sem birtast strax Íbúasvæði í Kherson í Úkraínu eru á floti eftir að stór stífla brast og þúsundir þurfa að flýja heimili sín. Utanríkisráðherra segir hryllilegar afleiðingar þegar komnar í ljós og ljóst að Rússland Pútíns muni ekki stoppa fyrr en það verður stöðvað. Innlent 6.6.2023 12:16 Yfirborð uppistöðulónsins var í methæðum Raforkuverið við Nova Kakhovka-stíflunnar í Kherson er ónýtt eins og stíflan og er útlit fyrir að sprenging hafi valdið skemmdunum. Íbúar segjast hafa heyrt sprengingar en enn hefur ekki verið staðfest hvað olli því að stíflan brast. Yfirborð uppistöðulónsins hafði hækkað mjög að undanförnu og stóð í methæðum. Erlent 6.6.2023 10:46 Unnið að rýmingu og Selenskí boðar til neyðarfundar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur boðað til neyðarfundar vegna eyðileggingar Nova Kakhovka-stíflunnar í Kherson. Unnið er að rýmingu vegna flóðahættu. Úkraínuher segir Rússa hafa sprengt stífluna en leppstjórn þeirra á svæðinu segir um hryðjuverk að ræða. Erlent 6.6.2023 06:19 Er gagnsókn Úkraínumanna hafin? Úkraínumenn eru byrjaðir að gera árásir í suðausturhluta Úkraínu. Fregnir hafa borist af tiltölulega smáum árásum í Dónetsk- og Sapórisjía-héruðum og eru Úkraínumenn sagðir hafa náð einhverjum árangri. Erfitt er þó að sannreyna fregnirnar að svo stöddu. Erlent 5.6.2023 14:54 Málaliðar Wagner handsömuðu og börðu rússneskan ofursta Málaliðar Wagner Group lentu á dögunum í skotbardaga við rússneska hermenn nærri Bakhmut. Bardaginn endaði með því að málaliðarnir handsömuðu rússneskan undirofursta, börðu hann og þvinguðu hann til að játa að hafa skipað mönnum sínum að skjóta á málaliðana. Erlent 5.6.2023 12:45 Rússar segjast hafa fellt 250 úkraínska hermenn Rússar segjast hafa hrundið stórri gagnárás úkraínska hersins í Donetsk í nótt og fullyrða að 250 úkraínskir hermenn liggi í valnum og að fjölmörg brynvarin tæki hafi verið eyðilögð. Erlent 5.6.2023 07:37 Úkraínumenn þjarma að Wagner-lausum Rússum í Bakhmut Úkraínski herinn þjarmar að Rússum við og í kringum borgina Bakhmut. Rússar lýstu sig sigurvegara í baráttunni um Bakhmut í síðasta mánuði eftir ein blóðugust átökin frá upphafi innrásarinnar. Þrýstingur Úkraínumanna er hluti af gagnsókn sem er að taka á sig mynd. Erlent 4.6.2023 08:09 Úkraínumenn tilbúnir til að hefja gagnsóknina Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínumenn tilbúna til gagnsóknar gegn Rússum. Hann segir að sóknin verði erfið og kostnaðarsöm en hann hafi trú á því að hún muni heppnast, þó hún gæti tekið langan tíma. Erlent 3.6.2023 09:22 Umfangsmikil eldflaugaárás á Kænugarð í morgun Íbúar um gervalla Úkraínu vöknuðu upp við loftvarnaflautur snemma í morgun vegna umfangsmikillar árásar Rússa og fólki sagt að leita skjóls. Erlent 2.6.2023 06:35 Úkraínuforseti segir stund ákvarðana runna upp Forseti Úkraínu segir Evrópuríki sem eiga landamæri að Rússlandi einungis hafa um tvennt að velja; opið stríð og hægfara hernám Rússa eða aðild að NATO og Evrópusambandinu. Nú væri stund ákvarðana varðandi aðild landsins að þessum samtökum runnin upp. Forsætisráðherra segir mikinn vilja meðal NATO ríkja að leiðtogafundur þess marki tímamót varðandi Úkraínu. Erlent 1.6.2023 19:20 Táknrænt stefnumót Evrópuleiðtoga á stríðstímum Forseti Úkraínu sagði við komuna á fund Evrópuleiðtoga í Moldóvu í dag að mikilvægt væri að Úkraína fengi aðild bæði að Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir fundinn mikilvægan vettvang á átakatímum. Innlent 1.6.2023 12:11 Ellefu ára stúlka í hópi látinna í eldflaugaárás á Kænugarð Ellefu ára stúlka, 34 ára móðir hennar og önnur 33 ára kona létust í eldflaugaárásum Rússa í Kænugarð snemma í morgun. Auk þess særðust tólf manns í árásunum. Erlent 1.6.2023 07:37 Hlynnt því að framlengja tollfrelsi úkraínskra vara Forsætisráðherra telur það skynsamlegt að framlengja tollfrjálsan innflutning úkraínskra vara. Efasemdir eru þó uppi um ágæti innflutningsins. Bráðabirgðaákvæði sem heimilar innflutninginn rennur út á morgun. Innlent 30.5.2023 19:01 Segir árásina á Moskvu vera hryðjuverk Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að drónaárás á Mosvku í morgun sé hryðjuverk. Árásinni hafi verið ætlað að hræða Rússa og ögra Rússum til að bregðast við með sambærilegum hætti. Erlent 30.5.2023 18:51 Vill strangara eftirlit með úkraínsku kjöti vegna sýklalyfjaónæmra baktería Bráðabirgðaákvæði sem heimilar tollfrjálsan innflutning vara frá Úkraínu rennur út í lok morgundagsins. Læknir segir að þó innflutningurinn hafi mikil áhrif á íslenskan markað megi ekki gleyma lýðheilsusjónarmiðum. Bakteríur, sem meðal annars eru ónæmar fyrir sýklalyfjum og hafa hingað til verið óþekktar hér á landi, finnist í miklu magni í úkraínsku kjöti. Innlent 30.5.2023 11:25 Drónaárásir á Kænugarð og Moskvu í nótt Drónaárásir voru gerðar á Kænugarð í Úkraínu og Moskvu í Rússlandi í nótt. Einn lést og nokkrir særðust í Kænugarði, þar sem hermálayfirvöld sögðust hafa skotið niður yfir 20 dróna. Erlent 30.5.2023 06:41 Bylgja drónaárása á Kænugarð Í nótt gerðu Rússar enn sprengjuárásir með notkun dróna á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu. Erlent 29.5.2023 08:36 Engin ákvörðun um úrsögn úr hnefaleikasambandi en fylgst með Hnefaleikaheimurinn logar þessa stundina. Alþjóða hnefaleikasambandið, IBA, er undir járnhæl rússnesks formanns sem styður Pútín og Bandaríkjamenn hafa stofnað eigin samband. Íslendingar fylgjast með. Sport 28.5.2023 09:00 Stór drónaárás á Kænugarð í nótt Rússar gerðu stóra drónaárás á höfuðborgina Kænugarð í nótt. Loftvarnarkerfi skaut hins vegar niður meirihlutann. Erlent 28.5.2023 07:55 Bretar viðurkenna Holodomor sem þjóðarmorð Neðri deild breska þingsins hefur samþykkt tillögu þess efnis að Holodomor verði viðurkennt sem þjóðarmorð. Allt að fimm milljónir Úkraínumanna sultu til bana á fjórða áratugnum vegna gjörða sovéska ríkisins. Erlent 26.5.2023 11:13 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: F-16 engin töfralausn fyrir Úkraínumenn Úkraínumenn hafa ekki enn byrjað hina umtöluðu vorsókn gegn Rússum í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa tekið Bakhmut en óljóst er hvort þeir hafi burði til að sækja áfram fram og útlit er fyrir að Úkraínumenn fái F-16 herþotur. Erlent 26.5.2023 08:01 Þrettánda árásin á Kænugarð í maímánuði Rússar skutu eldflaugum á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í morgun en um er að ræða þrettándu árásina í maímánuði. Erlent 26.5.2023 07:37 Bognar Bjarni undan hagsmunaþrýstingi? Eftir sex daga, hinn 31. maí, fellur úr gildi bráðabirgðaákvæði í tollalögum, sem fellir niður tolla af öllum vörum frá Úkraínu. Ákvæðið var sett í lög í fyrravor, að tillögu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sem flutti frumvarp um málið. Skoðun 25.5.2023 16:31 Þrýsta á ráðherra að endurnýja ekki tollfrelsi vara frá Úkraínu Næsta miðvikudag fellur bráðabirgðaákvæði úr gildi um tollfrjálsan innflutning vara frá Úkraínu en Alþingi samþykkti ákvæðið síðasta sumar til að styðja við úkraínskt efnahags-og atvinnulíf vegna innrásarstríðs Rússa. Bretland og Evrópusambandið hafa endurnýjað sín ákvæði um niðurfellingu tolla en ekkert hefur enn komið frá fjármálaráðherra. Innlent 25.5.2023 14:17 Óttast ósigur Rússa og varar við byltingu heima fyrir „Við erum í stöðu þar sem við getum einfaldlega glatað Rússlandi,“ segir Yevgeniy Prigozhin, stofnandi og stjórnandi Wagner-málaliðahópsins, í viðtali við Konstantin Dolgov, einn þekktasta herbloggara Rússlands. Erlent 25.5.2023 07:37 Rússneskir uppreisnarmenn lofa frekari árásum Foringi rússnesks uppreisnarhóps sem réðst inn í rússneska bæinn Belgorod á dögunum segir að þeir muni láta til skarar skríða aftur innan tíðar. Erlent 25.5.2023 07:23 Össur styður Úkraínu enn frekar: „Við erum einbeitt í að leggja okkar af mörkum“ Össur hf. hefur undirritað rammasamkomulag um frekara samstarf við endurhæfingaspítala í Úkraínu. Gert er ráð fyrir að fjöldi hermanna og óbreyttra borgara sem þurfa á stoðtækjum að halda sé um tuttugu þúsund. Innlent 24.5.2023 17:36 Reykvíkingar skipta Lviv inn fyrir Moskvu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur er nú staddur í Úkraínu en hann og Andriy Sadovyy borgarstjóri Lvív undirrituðu samkomulag um samvinnu borganna að viðstöddu fjölmenni í Ráðhúsinu í Lviv á þriðjudaginn síðastliðinn. Innlent 24.5.2023 16:27 Bandaríkjamenn segjast hvorki hafa hvatt til né stutt árásir í Rússlandi Stjórnvöld í Bandaríkjunum segjast hvorki hafa hvatt til né greitt fyrir árásum á skotmörk í Rússlandi, eftir að sögusagnir fóru á flug á samfélagsmiðlum og víðar að vopn frá Vesturlöndum hefðu verið notuð í árásunum. Erlent 24.5.2023 06:47 Leggja verði fram vegvísi að NATO aðild Úkraínu Utanríkisráðherra Lettlands segir Úkraínu eiga heima í Atlandshafsbandalaginu og bandalagið verði að leggja fram vegvísi að því hvernig að það muni gerast. Nú heyrist raddir um að enda þurfi stríðið áður en Úkraína hafi unnið hertekin landsvæði til baka en það megi ekki gerast því Rússar muni ganga á lagið og hervæðast á ný. Erlent 23.5.2023 19:16 « ‹ 14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 79 ›
Hryllilegt að sjá afleiðingarnar sem birtast strax Íbúasvæði í Kherson í Úkraínu eru á floti eftir að stór stífla brast og þúsundir þurfa að flýja heimili sín. Utanríkisráðherra segir hryllilegar afleiðingar þegar komnar í ljós og ljóst að Rússland Pútíns muni ekki stoppa fyrr en það verður stöðvað. Innlent 6.6.2023 12:16
Yfirborð uppistöðulónsins var í methæðum Raforkuverið við Nova Kakhovka-stíflunnar í Kherson er ónýtt eins og stíflan og er útlit fyrir að sprenging hafi valdið skemmdunum. Íbúar segjast hafa heyrt sprengingar en enn hefur ekki verið staðfest hvað olli því að stíflan brast. Yfirborð uppistöðulónsins hafði hækkað mjög að undanförnu og stóð í methæðum. Erlent 6.6.2023 10:46
Unnið að rýmingu og Selenskí boðar til neyðarfundar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur boðað til neyðarfundar vegna eyðileggingar Nova Kakhovka-stíflunnar í Kherson. Unnið er að rýmingu vegna flóðahættu. Úkraínuher segir Rússa hafa sprengt stífluna en leppstjórn þeirra á svæðinu segir um hryðjuverk að ræða. Erlent 6.6.2023 06:19
Er gagnsókn Úkraínumanna hafin? Úkraínumenn eru byrjaðir að gera árásir í suðausturhluta Úkraínu. Fregnir hafa borist af tiltölulega smáum árásum í Dónetsk- og Sapórisjía-héruðum og eru Úkraínumenn sagðir hafa náð einhverjum árangri. Erfitt er þó að sannreyna fregnirnar að svo stöddu. Erlent 5.6.2023 14:54
Málaliðar Wagner handsömuðu og börðu rússneskan ofursta Málaliðar Wagner Group lentu á dögunum í skotbardaga við rússneska hermenn nærri Bakhmut. Bardaginn endaði með því að málaliðarnir handsömuðu rússneskan undirofursta, börðu hann og þvinguðu hann til að játa að hafa skipað mönnum sínum að skjóta á málaliðana. Erlent 5.6.2023 12:45
Rússar segjast hafa fellt 250 úkraínska hermenn Rússar segjast hafa hrundið stórri gagnárás úkraínska hersins í Donetsk í nótt og fullyrða að 250 úkraínskir hermenn liggi í valnum og að fjölmörg brynvarin tæki hafi verið eyðilögð. Erlent 5.6.2023 07:37
Úkraínumenn þjarma að Wagner-lausum Rússum í Bakhmut Úkraínski herinn þjarmar að Rússum við og í kringum borgina Bakhmut. Rússar lýstu sig sigurvegara í baráttunni um Bakhmut í síðasta mánuði eftir ein blóðugust átökin frá upphafi innrásarinnar. Þrýstingur Úkraínumanna er hluti af gagnsókn sem er að taka á sig mynd. Erlent 4.6.2023 08:09
Úkraínumenn tilbúnir til að hefja gagnsóknina Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínumenn tilbúna til gagnsóknar gegn Rússum. Hann segir að sóknin verði erfið og kostnaðarsöm en hann hafi trú á því að hún muni heppnast, þó hún gæti tekið langan tíma. Erlent 3.6.2023 09:22
Umfangsmikil eldflaugaárás á Kænugarð í morgun Íbúar um gervalla Úkraínu vöknuðu upp við loftvarnaflautur snemma í morgun vegna umfangsmikillar árásar Rússa og fólki sagt að leita skjóls. Erlent 2.6.2023 06:35
Úkraínuforseti segir stund ákvarðana runna upp Forseti Úkraínu segir Evrópuríki sem eiga landamæri að Rússlandi einungis hafa um tvennt að velja; opið stríð og hægfara hernám Rússa eða aðild að NATO og Evrópusambandinu. Nú væri stund ákvarðana varðandi aðild landsins að þessum samtökum runnin upp. Forsætisráðherra segir mikinn vilja meðal NATO ríkja að leiðtogafundur þess marki tímamót varðandi Úkraínu. Erlent 1.6.2023 19:20
Táknrænt stefnumót Evrópuleiðtoga á stríðstímum Forseti Úkraínu sagði við komuna á fund Evrópuleiðtoga í Moldóvu í dag að mikilvægt væri að Úkraína fengi aðild bæði að Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir fundinn mikilvægan vettvang á átakatímum. Innlent 1.6.2023 12:11
Ellefu ára stúlka í hópi látinna í eldflaugaárás á Kænugarð Ellefu ára stúlka, 34 ára móðir hennar og önnur 33 ára kona létust í eldflaugaárásum Rússa í Kænugarð snemma í morgun. Auk þess særðust tólf manns í árásunum. Erlent 1.6.2023 07:37
Hlynnt því að framlengja tollfrelsi úkraínskra vara Forsætisráðherra telur það skynsamlegt að framlengja tollfrjálsan innflutning úkraínskra vara. Efasemdir eru þó uppi um ágæti innflutningsins. Bráðabirgðaákvæði sem heimilar innflutninginn rennur út á morgun. Innlent 30.5.2023 19:01
Segir árásina á Moskvu vera hryðjuverk Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að drónaárás á Mosvku í morgun sé hryðjuverk. Árásinni hafi verið ætlað að hræða Rússa og ögra Rússum til að bregðast við með sambærilegum hætti. Erlent 30.5.2023 18:51
Vill strangara eftirlit með úkraínsku kjöti vegna sýklalyfjaónæmra baktería Bráðabirgðaákvæði sem heimilar tollfrjálsan innflutning vara frá Úkraínu rennur út í lok morgundagsins. Læknir segir að þó innflutningurinn hafi mikil áhrif á íslenskan markað megi ekki gleyma lýðheilsusjónarmiðum. Bakteríur, sem meðal annars eru ónæmar fyrir sýklalyfjum og hafa hingað til verið óþekktar hér á landi, finnist í miklu magni í úkraínsku kjöti. Innlent 30.5.2023 11:25
Drónaárásir á Kænugarð og Moskvu í nótt Drónaárásir voru gerðar á Kænugarð í Úkraínu og Moskvu í Rússlandi í nótt. Einn lést og nokkrir særðust í Kænugarði, þar sem hermálayfirvöld sögðust hafa skotið niður yfir 20 dróna. Erlent 30.5.2023 06:41
Bylgja drónaárása á Kænugarð Í nótt gerðu Rússar enn sprengjuárásir með notkun dróna á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu. Erlent 29.5.2023 08:36
Engin ákvörðun um úrsögn úr hnefaleikasambandi en fylgst með Hnefaleikaheimurinn logar þessa stundina. Alþjóða hnefaleikasambandið, IBA, er undir járnhæl rússnesks formanns sem styður Pútín og Bandaríkjamenn hafa stofnað eigin samband. Íslendingar fylgjast með. Sport 28.5.2023 09:00
Stór drónaárás á Kænugarð í nótt Rússar gerðu stóra drónaárás á höfuðborgina Kænugarð í nótt. Loftvarnarkerfi skaut hins vegar niður meirihlutann. Erlent 28.5.2023 07:55
Bretar viðurkenna Holodomor sem þjóðarmorð Neðri deild breska þingsins hefur samþykkt tillögu þess efnis að Holodomor verði viðurkennt sem þjóðarmorð. Allt að fimm milljónir Úkraínumanna sultu til bana á fjórða áratugnum vegna gjörða sovéska ríkisins. Erlent 26.5.2023 11:13
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: F-16 engin töfralausn fyrir Úkraínumenn Úkraínumenn hafa ekki enn byrjað hina umtöluðu vorsókn gegn Rússum í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa tekið Bakhmut en óljóst er hvort þeir hafi burði til að sækja áfram fram og útlit er fyrir að Úkraínumenn fái F-16 herþotur. Erlent 26.5.2023 08:01
Þrettánda árásin á Kænugarð í maímánuði Rússar skutu eldflaugum á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í morgun en um er að ræða þrettándu árásina í maímánuði. Erlent 26.5.2023 07:37
Bognar Bjarni undan hagsmunaþrýstingi? Eftir sex daga, hinn 31. maí, fellur úr gildi bráðabirgðaákvæði í tollalögum, sem fellir niður tolla af öllum vörum frá Úkraínu. Ákvæðið var sett í lög í fyrravor, að tillögu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sem flutti frumvarp um málið. Skoðun 25.5.2023 16:31
Þrýsta á ráðherra að endurnýja ekki tollfrelsi vara frá Úkraínu Næsta miðvikudag fellur bráðabirgðaákvæði úr gildi um tollfrjálsan innflutning vara frá Úkraínu en Alþingi samþykkti ákvæðið síðasta sumar til að styðja við úkraínskt efnahags-og atvinnulíf vegna innrásarstríðs Rússa. Bretland og Evrópusambandið hafa endurnýjað sín ákvæði um niðurfellingu tolla en ekkert hefur enn komið frá fjármálaráðherra. Innlent 25.5.2023 14:17
Óttast ósigur Rússa og varar við byltingu heima fyrir „Við erum í stöðu þar sem við getum einfaldlega glatað Rússlandi,“ segir Yevgeniy Prigozhin, stofnandi og stjórnandi Wagner-málaliðahópsins, í viðtali við Konstantin Dolgov, einn þekktasta herbloggara Rússlands. Erlent 25.5.2023 07:37
Rússneskir uppreisnarmenn lofa frekari árásum Foringi rússnesks uppreisnarhóps sem réðst inn í rússneska bæinn Belgorod á dögunum segir að þeir muni láta til skarar skríða aftur innan tíðar. Erlent 25.5.2023 07:23
Össur styður Úkraínu enn frekar: „Við erum einbeitt í að leggja okkar af mörkum“ Össur hf. hefur undirritað rammasamkomulag um frekara samstarf við endurhæfingaspítala í Úkraínu. Gert er ráð fyrir að fjöldi hermanna og óbreyttra borgara sem þurfa á stoðtækjum að halda sé um tuttugu þúsund. Innlent 24.5.2023 17:36
Reykvíkingar skipta Lviv inn fyrir Moskvu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur er nú staddur í Úkraínu en hann og Andriy Sadovyy borgarstjóri Lvív undirrituðu samkomulag um samvinnu borganna að viðstöddu fjölmenni í Ráðhúsinu í Lviv á þriðjudaginn síðastliðinn. Innlent 24.5.2023 16:27
Bandaríkjamenn segjast hvorki hafa hvatt til né stutt árásir í Rússlandi Stjórnvöld í Bandaríkjunum segjast hvorki hafa hvatt til né greitt fyrir árásum á skotmörk í Rússlandi, eftir að sögusagnir fóru á flug á samfélagsmiðlum og víðar að vopn frá Vesturlöndum hefðu verið notuð í árásunum. Erlent 24.5.2023 06:47
Leggja verði fram vegvísi að NATO aðild Úkraínu Utanríkisráðherra Lettlands segir Úkraínu eiga heima í Atlandshafsbandalaginu og bandalagið verði að leggja fram vegvísi að því hvernig að það muni gerast. Nú heyrist raddir um að enda þurfi stríðið áður en Úkraína hafi unnið hertekin landsvæði til baka en það megi ekki gerast því Rússar muni ganga á lagið og hervæðast á ný. Erlent 23.5.2023 19:16