Úkraína Rússar segjast ætla að hörfa frá Kherson Sergei Surovkin, herforingi sem er yfir innrás Rússa í Kherson, lýsti því yfir í dag að hann ætli að flytja alla rússneska hermenn frá vesturbakka Dniproár. Rússar munu þar með yfirgefa Kherson-borg, sem er eina héraðshöfuðborgin sem þeir hafa hernumið frá því innrásin hófst í febrúar. Erlent 9.11.2022 15:19 Penn lánar Selenskí Óskarsverðlaunin Leikarinn og leikstjórinn Sean Penn er staddur í Úkraínu, þar sem hann fundaði meðal annars með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta og lánaði honum annan af tveimur Óskarsverðlaungripum sínum. Bað hann Selenskí að skila styttunni til Malibu þegar Úkraínumenn hefðu haft sigur af Rússum. Erlent 9.11.2022 12:25 Sagðir sækja fram úr nokkrum áttum í Kherson Hersveitir Úkraínu hafa náð árangri gegn Rússum í Kherson-héraði í dag og í gær. Rússar eru sagðir hafa verið sigraðir í nokkrum þorpum á vesturbakka Dniproár og hafa sprengt upp nokkrar brýr til að gera Úkraínumönnum erfitt um vik. Erlent 9.11.2022 11:48 Rússar hafa lagt skóla- og heilbrigðiskerfi Úkraínu í rúst Viðhorf almennings í helstu iðnríkjum heims til kvenleiðtoga hefur versnað ef eitthvað er á undanförnum árum, að sögn ráðgjafa þings kvenleiðtoga í Reykjavík. Þingkona frá Úkraínu segir Rússa hafa sprengt hundruð skóla og heilbrigðisstofnana í loft upp. Innlent 8.11.2022 19:20 Vill að heimurinn þvingi Pútín til raunverulegra viðræðna Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, tók í gærkvöldi harða afstöðu varðandi mögulegar viðræður við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Hann sagði að viðræður myndu ekki eiga sér stað nema Rússar létu af tilkalli til landsvæðis Úkraínu og hét hann því að Úkraínumenn myndu ekki hætta að berjast gegn innrás Rússa ef bakhjarlar ríkisins létu af stuðningi þeirra. Erlent 8.11.2022 16:14 „Hver kassi skiptir máli“ Söfnun fyrir verkefnið „Jól í skókassa“ stendur yfir um þessar mundir. Vonast er til þess að hægt verði að fylla heilan gám af kössum sem fer til barna í neyð í Úkraínu. Kassarnir hafa verið sendir þangað í nítján ár. Innlent 8.11.2022 00:00 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Ein herdeild sögð hafa misst þrjú hundruð menn á fjórum dögum Rússneskir landgönguliðar neituðu nýverið að sækja fram og gagnrýndu yfirmenn sína harðlega eftir að þeir misstu þrjú hundruð menn á nokkrum dögum. Mennirnir féllu eða særðust í umfangsmikilli árás á Úkraínumenn í og við Pavlivka í suðaustanverðri Úkraínu. Erlent 7.11.2022 11:45 Íbúar Kænugarðs gætu þurft að yfirgefa borgina Vitaliy Klitschko borgarstjóri Kænugarðs höfuðborgar Úkraínu segir að borgarbúar verði að vera undirbúnir undir að þurfa að yfirgefa borgina, ef allt rafmagn fer af henni til langs tíma. Erlent 7.11.2022 07:24 Rússar þykist fara frá Kherson til að lokka hermenn í gildru Yfirvöld í Úkraínu segja að Rússar beiti blekkingum í Kherson með því að þykjast hörfa frá borginni. Með blekkingunni ætli þeir að lokka hermenn í gildru og sitja fyrir þeim. Erlent 6.11.2022 20:15 Gangast loks við því að útvega Rússum dróna Utanríkisráðherra Írans viðurkenndi í fyrsta skipti í dag að ríkisstjórn hans hefði útvegað Rússum dróna sem hafa verið notaðir í sprengjuárásir í Úkraínu. Hann fullyrðir að drónarnir hafi verið afhentir áður en innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 5.11.2022 09:10 Kölluðu ódæðin í Bucha „hreinsanir“: „Ég er búinn að drepa svo mikið af borgurum“ Þegar rússneskir hermenn tóku yfir bæinn Bucha, norður af Kænugarði, snemma eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar, fóru hermenn um bæinn með lista. Á þeim listum, sem voru frá leyniþjónustum Rússlands, voru nöfn fólks sem talið var geta ógnað Rússum. Erlent 4.11.2022 10:53 Á fimmtu milljón án rafmagns í Úkraínu Volodómír Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um að beita "orkuhryðjuverkum" í stríðsrekstri sínum í Úkraínu. Erlent 4.11.2022 07:33 Fjarlægðu rússneska fánann af ráðhúsinu í Kherson og sagðir líklegir til að hörfa Einn af leppstjórum Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu sagði í morgun að líklegt væri að rússneskir hermenn myndu hörfa frá vesturbakka Dniproár og þar með Kherson-borg, einu héraðshöfuðborginni sem Rússar hafa náð tökum á frá því innrás þeirra hófst í febrúar. Erlent 3.11.2022 14:29 Rússar hættir við að hætta við Rússar hættu í gær við að hætta við þátttöku í samningi sem náðst hafði um öruggan flutning kornvöru frá Úkraínu. Varnarmálaráðuneyti Rússlands sagði í gær að Rússar hefðu verið fullvissaðir um að „kornhliðið“ yrði ekki notað til að gera árásir á rússneska flotann. Erlent 3.11.2022 08:16 Herforingjar ræddu mögulega notkun kjarnorkuvopna Æðstu leiðtogar rússneska hersins ræddu mögulega notkun smárra kjarnorkuvopna í Úkraínu og hvort rússneski herinn gæti gagnast á því. Umræðan leiddi til aukinna áhyggja í Bandaríkjunum og víðar og þykir til marks um að Rússar séu verulega ósáttir við gang „sértæku hernaðaraðgerðarinnar“ svokölluðu. Erlent 2.11.2022 10:45 75 ára kona barin, skorin og nauðgað Leppstjórar Rússlands í suðurhluta Úkraínu hafa tilkynnt að fleiri íbúar verði fluttir frá Kherson-héraði en þegar hefur verið gert. Yfirvöld í Kænugarði segir að verið sé þvinga íbúa á brott en Rússar vinna hörðum höndum að því að byggja upp varnir á vestur-bakka Dniproár í kringum Kherson-borg, höfuðborg héraðsins. Erlent 1.11.2022 15:10 Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu í símtali við Selenskíj Joe Biden Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu þegar hann ræddi við Vólódímír Selenskíj forseta Úkraínu fyrr á árinu. Selenskíj á að hafa beðið Biden um frekari fjárstuðning og er Biden sagður hafa orðið pirraður. Erlent 31.10.2022 19:33 Leðjutímabil hafi áhrif á frammistöðu í stríðinu Íbúi í Kænugarði segir að magn sprenginga sem urðu á svæðinu í morgun sé svar Rússa við árás Úkraínumanna á Svartahafsflotann. Úkraínumenn séu enn í mikilli sókn en veðurfar hafi nú áhrif á frammistöðu beggja ríkja. Erlent 31.10.2022 13:00 Neyðarskömmtun víða í gildi eftir umfangsmiklar loftárásir Rússa Loftvarnaflautur fóru í gang og sprengingar heyrðust víða um Úkraínu í morgun. Íbúar voru hvattir til að leita skjóls, meðal annars í Kænugarði og á að minnsta kosti tíu öðrum svæðum. Erlent 31.10.2022 11:45 Úkraínumenn vakna við loftvarnaflautur og sprengingar Loftvarnaflautur ómuðu víða í Úkraínu í morgun og sprengingar hafa heyrst í Kænugarði. Fregnir herma að um hafi verið að ræða sjö til átta sprengingar en að sögn Anton Gerashchenko, ráðgjafa Úkraínuforseta, skutu Rússar um það bil 40 eldflaugum á hin ýmsu skotmörk í morgun. Erlent 31.10.2022 07:13 Rússar slíta sig frá kornsamkomulaginu vegna árásar við Krímskaga Yfirvöld í Rússlandi lýstu því yfir í gærkvöldi að ríkið myndi ekki langur taka þátt í samkomulagi sem hefur orðið til þess að rúm níu milljón tonn af korni hafa verið flutt frá Úkraínu frá því innrás Rússa hófst. Úkraínumenn saka Rússa um að reyna að beita hungri sem vopni. Erlent 30.10.2022 08:24 Skemmdu nýja flaggskip Rússa í drónaárás Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á rússneska flotann í Svartahafi við Krímskaga. Notast var við dróna við árásina og þá bæði fljúgandi og siglandi dróna en Úkraínumenn eru sagðir hafa skemmt Makarov aðmírál, flaggskip svartahafsflota Rússa. Erlent 29.10.2022 14:48 Segir Rússa hafa gert þrjátíu drónaárásir á tveimur dögum Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sagði í reglulegu ávarpi sínu í nótt að Rússar hafi gert fleiri en þrjátíu árásir með drónum á Úkraínskar borgir síðustu tvo dagana. Erlent 28.10.2022 07:34 Segir næsta áratug þann hættulegasta frá seinni heimsstyrjöldinni Heimsbúar standa frammi fyrir hættulegasta áratug heimsins frá seinni heimsstyrjöldinni. Þetta sagði Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í ræðu sem hann flutti í dag þar sem hann sakaði meðal annars Vesturlönd um að bera ábyrgð á innrás hans í Úkraínu og valda usla í heiminum. Erlent 27.10.2022 21:53 Skildu eftir sig skjöl sem varpa ljósi á vandræði Rússa Þegar hersveitir Rússa hörfuðu með hraði frá austanverðu Kharkív-héraði í Úkraínu í september, skyldu þeir ýmislegt eftir sig. Þar á meðal mikið magn þungavopna eins og skrið- og bryndreka auk stórskotaliðsvopna. Þeir skyldu þó einnig eftir sig mikið magn gagna. Erlent 27.10.2022 15:15 Selenskí segir hegðun Rússa brjálæðislega Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sakar rússneska herforingja úr innrásarliðinu um brjálæðislega hegðun þegar kemur að því að reyna að ná bænum Bakhmut á sitt vald. Erlent 27.10.2022 06:56 Eitt fyrstu verka Sunaks að hringja til Úkraínuforseta Rishi Sunak nýr forsætisráðherra Bretlands hét forseta Úkraínu í gær áframhaldandi stuðningi Breta í baráttunni gegn innrás Rússa. Forseti Þýskalands dáðist af hughrekki Úkraínumanna í heimsókn til Kænugarðs í gær og lofaði aukinni hernaðaraðstoð. Erlent 26.10.2022 11:40 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vegnar vel á víglínunum en þurfa mikla aðstoð Úkraínumönnum hefur vegnað ágætlega á víglínunum síðustu vikur en árásir Rússa á innviði og borgaraleg skotmörk hafa kostað sitt. Ráðamenn í Úkraínu og Vesturlöndum segja ríkið þurfa mikla fjárhagslega aðstoð á komandi árum. Erlent 26.10.2022 11:07 Hvetja þá sem hafa flúið til að halda sig erlendis út veturinn Stjórnvöld í Úkraínu hafa biðlað til þeirra Úkraínumanna sem hafa flúið land frá því að Rússar hófu innrás sína í febrúar síðastliðnum, um að snúa ekki aftur fyrr en í vor. Orkuinnviðir landsins ráði einfaldlega ekki við mannfjöldann. Erlent 26.10.2022 07:12 Rússar búa sig undir árás á Kherson Rússneskar hersveitir í Kherson héraði búa sig nú undir mikinn bardaga við úkraínska herinn að sögn úkraínsks embættismanns. Erlent 26.10.2022 06:52 « ‹ 26 27 28 29 30 31 32 33 34 … 79 ›
Rússar segjast ætla að hörfa frá Kherson Sergei Surovkin, herforingi sem er yfir innrás Rússa í Kherson, lýsti því yfir í dag að hann ætli að flytja alla rússneska hermenn frá vesturbakka Dniproár. Rússar munu þar með yfirgefa Kherson-borg, sem er eina héraðshöfuðborgin sem þeir hafa hernumið frá því innrásin hófst í febrúar. Erlent 9.11.2022 15:19
Penn lánar Selenskí Óskarsverðlaunin Leikarinn og leikstjórinn Sean Penn er staddur í Úkraínu, þar sem hann fundaði meðal annars með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta og lánaði honum annan af tveimur Óskarsverðlaungripum sínum. Bað hann Selenskí að skila styttunni til Malibu þegar Úkraínumenn hefðu haft sigur af Rússum. Erlent 9.11.2022 12:25
Sagðir sækja fram úr nokkrum áttum í Kherson Hersveitir Úkraínu hafa náð árangri gegn Rússum í Kherson-héraði í dag og í gær. Rússar eru sagðir hafa verið sigraðir í nokkrum þorpum á vesturbakka Dniproár og hafa sprengt upp nokkrar brýr til að gera Úkraínumönnum erfitt um vik. Erlent 9.11.2022 11:48
Rússar hafa lagt skóla- og heilbrigðiskerfi Úkraínu í rúst Viðhorf almennings í helstu iðnríkjum heims til kvenleiðtoga hefur versnað ef eitthvað er á undanförnum árum, að sögn ráðgjafa þings kvenleiðtoga í Reykjavík. Þingkona frá Úkraínu segir Rússa hafa sprengt hundruð skóla og heilbrigðisstofnana í loft upp. Innlent 8.11.2022 19:20
Vill að heimurinn þvingi Pútín til raunverulegra viðræðna Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, tók í gærkvöldi harða afstöðu varðandi mögulegar viðræður við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Hann sagði að viðræður myndu ekki eiga sér stað nema Rússar létu af tilkalli til landsvæðis Úkraínu og hét hann því að Úkraínumenn myndu ekki hætta að berjast gegn innrás Rússa ef bakhjarlar ríkisins létu af stuðningi þeirra. Erlent 8.11.2022 16:14
„Hver kassi skiptir máli“ Söfnun fyrir verkefnið „Jól í skókassa“ stendur yfir um þessar mundir. Vonast er til þess að hægt verði að fylla heilan gám af kössum sem fer til barna í neyð í Úkraínu. Kassarnir hafa verið sendir þangað í nítján ár. Innlent 8.11.2022 00:00
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Ein herdeild sögð hafa misst þrjú hundruð menn á fjórum dögum Rússneskir landgönguliðar neituðu nýverið að sækja fram og gagnrýndu yfirmenn sína harðlega eftir að þeir misstu þrjú hundruð menn á nokkrum dögum. Mennirnir féllu eða særðust í umfangsmikilli árás á Úkraínumenn í og við Pavlivka í suðaustanverðri Úkraínu. Erlent 7.11.2022 11:45
Íbúar Kænugarðs gætu þurft að yfirgefa borgina Vitaliy Klitschko borgarstjóri Kænugarðs höfuðborgar Úkraínu segir að borgarbúar verði að vera undirbúnir undir að þurfa að yfirgefa borgina, ef allt rafmagn fer af henni til langs tíma. Erlent 7.11.2022 07:24
Rússar þykist fara frá Kherson til að lokka hermenn í gildru Yfirvöld í Úkraínu segja að Rússar beiti blekkingum í Kherson með því að þykjast hörfa frá borginni. Með blekkingunni ætli þeir að lokka hermenn í gildru og sitja fyrir þeim. Erlent 6.11.2022 20:15
Gangast loks við því að útvega Rússum dróna Utanríkisráðherra Írans viðurkenndi í fyrsta skipti í dag að ríkisstjórn hans hefði útvegað Rússum dróna sem hafa verið notaðir í sprengjuárásir í Úkraínu. Hann fullyrðir að drónarnir hafi verið afhentir áður en innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 5.11.2022 09:10
Kölluðu ódæðin í Bucha „hreinsanir“: „Ég er búinn að drepa svo mikið af borgurum“ Þegar rússneskir hermenn tóku yfir bæinn Bucha, norður af Kænugarði, snemma eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar, fóru hermenn um bæinn með lista. Á þeim listum, sem voru frá leyniþjónustum Rússlands, voru nöfn fólks sem talið var geta ógnað Rússum. Erlent 4.11.2022 10:53
Á fimmtu milljón án rafmagns í Úkraínu Volodómír Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um að beita "orkuhryðjuverkum" í stríðsrekstri sínum í Úkraínu. Erlent 4.11.2022 07:33
Fjarlægðu rússneska fánann af ráðhúsinu í Kherson og sagðir líklegir til að hörfa Einn af leppstjórum Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu sagði í morgun að líklegt væri að rússneskir hermenn myndu hörfa frá vesturbakka Dniproár og þar með Kherson-borg, einu héraðshöfuðborginni sem Rússar hafa náð tökum á frá því innrás þeirra hófst í febrúar. Erlent 3.11.2022 14:29
Rússar hættir við að hætta við Rússar hættu í gær við að hætta við þátttöku í samningi sem náðst hafði um öruggan flutning kornvöru frá Úkraínu. Varnarmálaráðuneyti Rússlands sagði í gær að Rússar hefðu verið fullvissaðir um að „kornhliðið“ yrði ekki notað til að gera árásir á rússneska flotann. Erlent 3.11.2022 08:16
Herforingjar ræddu mögulega notkun kjarnorkuvopna Æðstu leiðtogar rússneska hersins ræddu mögulega notkun smárra kjarnorkuvopna í Úkraínu og hvort rússneski herinn gæti gagnast á því. Umræðan leiddi til aukinna áhyggja í Bandaríkjunum og víðar og þykir til marks um að Rússar séu verulega ósáttir við gang „sértæku hernaðaraðgerðarinnar“ svokölluðu. Erlent 2.11.2022 10:45
75 ára kona barin, skorin og nauðgað Leppstjórar Rússlands í suðurhluta Úkraínu hafa tilkynnt að fleiri íbúar verði fluttir frá Kherson-héraði en þegar hefur verið gert. Yfirvöld í Kænugarði segir að verið sé þvinga íbúa á brott en Rússar vinna hörðum höndum að því að byggja upp varnir á vestur-bakka Dniproár í kringum Kherson-borg, höfuðborg héraðsins. Erlent 1.11.2022 15:10
Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu í símtali við Selenskíj Joe Biden Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu þegar hann ræddi við Vólódímír Selenskíj forseta Úkraínu fyrr á árinu. Selenskíj á að hafa beðið Biden um frekari fjárstuðning og er Biden sagður hafa orðið pirraður. Erlent 31.10.2022 19:33
Leðjutímabil hafi áhrif á frammistöðu í stríðinu Íbúi í Kænugarði segir að magn sprenginga sem urðu á svæðinu í morgun sé svar Rússa við árás Úkraínumanna á Svartahafsflotann. Úkraínumenn séu enn í mikilli sókn en veðurfar hafi nú áhrif á frammistöðu beggja ríkja. Erlent 31.10.2022 13:00
Neyðarskömmtun víða í gildi eftir umfangsmiklar loftárásir Rússa Loftvarnaflautur fóru í gang og sprengingar heyrðust víða um Úkraínu í morgun. Íbúar voru hvattir til að leita skjóls, meðal annars í Kænugarði og á að minnsta kosti tíu öðrum svæðum. Erlent 31.10.2022 11:45
Úkraínumenn vakna við loftvarnaflautur og sprengingar Loftvarnaflautur ómuðu víða í Úkraínu í morgun og sprengingar hafa heyrst í Kænugarði. Fregnir herma að um hafi verið að ræða sjö til átta sprengingar en að sögn Anton Gerashchenko, ráðgjafa Úkraínuforseta, skutu Rússar um það bil 40 eldflaugum á hin ýmsu skotmörk í morgun. Erlent 31.10.2022 07:13
Rússar slíta sig frá kornsamkomulaginu vegna árásar við Krímskaga Yfirvöld í Rússlandi lýstu því yfir í gærkvöldi að ríkið myndi ekki langur taka þátt í samkomulagi sem hefur orðið til þess að rúm níu milljón tonn af korni hafa verið flutt frá Úkraínu frá því innrás Rússa hófst. Úkraínumenn saka Rússa um að reyna að beita hungri sem vopni. Erlent 30.10.2022 08:24
Skemmdu nýja flaggskip Rússa í drónaárás Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á rússneska flotann í Svartahafi við Krímskaga. Notast var við dróna við árásina og þá bæði fljúgandi og siglandi dróna en Úkraínumenn eru sagðir hafa skemmt Makarov aðmírál, flaggskip svartahafsflota Rússa. Erlent 29.10.2022 14:48
Segir Rússa hafa gert þrjátíu drónaárásir á tveimur dögum Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sagði í reglulegu ávarpi sínu í nótt að Rússar hafi gert fleiri en þrjátíu árásir með drónum á Úkraínskar borgir síðustu tvo dagana. Erlent 28.10.2022 07:34
Segir næsta áratug þann hættulegasta frá seinni heimsstyrjöldinni Heimsbúar standa frammi fyrir hættulegasta áratug heimsins frá seinni heimsstyrjöldinni. Þetta sagði Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í ræðu sem hann flutti í dag þar sem hann sakaði meðal annars Vesturlönd um að bera ábyrgð á innrás hans í Úkraínu og valda usla í heiminum. Erlent 27.10.2022 21:53
Skildu eftir sig skjöl sem varpa ljósi á vandræði Rússa Þegar hersveitir Rússa hörfuðu með hraði frá austanverðu Kharkív-héraði í Úkraínu í september, skyldu þeir ýmislegt eftir sig. Þar á meðal mikið magn þungavopna eins og skrið- og bryndreka auk stórskotaliðsvopna. Þeir skyldu þó einnig eftir sig mikið magn gagna. Erlent 27.10.2022 15:15
Selenskí segir hegðun Rússa brjálæðislega Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sakar rússneska herforingja úr innrásarliðinu um brjálæðislega hegðun þegar kemur að því að reyna að ná bænum Bakhmut á sitt vald. Erlent 27.10.2022 06:56
Eitt fyrstu verka Sunaks að hringja til Úkraínuforseta Rishi Sunak nýr forsætisráðherra Bretlands hét forseta Úkraínu í gær áframhaldandi stuðningi Breta í baráttunni gegn innrás Rússa. Forseti Þýskalands dáðist af hughrekki Úkraínumanna í heimsókn til Kænugarðs í gær og lofaði aukinni hernaðaraðstoð. Erlent 26.10.2022 11:40
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vegnar vel á víglínunum en þurfa mikla aðstoð Úkraínumönnum hefur vegnað ágætlega á víglínunum síðustu vikur en árásir Rússa á innviði og borgaraleg skotmörk hafa kostað sitt. Ráðamenn í Úkraínu og Vesturlöndum segja ríkið þurfa mikla fjárhagslega aðstoð á komandi árum. Erlent 26.10.2022 11:07
Hvetja þá sem hafa flúið til að halda sig erlendis út veturinn Stjórnvöld í Úkraínu hafa biðlað til þeirra Úkraínumanna sem hafa flúið land frá því að Rússar hófu innrás sína í febrúar síðastliðnum, um að snúa ekki aftur fyrr en í vor. Orkuinnviðir landsins ráði einfaldlega ekki við mannfjöldann. Erlent 26.10.2022 07:12
Rússar búa sig undir árás á Kherson Rússneskar hersveitir í Kherson héraði búa sig nú undir mikinn bardaga við úkraínska herinn að sögn úkraínsks embættismanns. Erlent 26.10.2022 06:52