Umfjöllun og myndir: Ísland - Tyrkland 2-0 | Strákarnir hver öðrum betri í sannfærandi sigri Smári Jökull Jónsson á Laugardalsvelli skrifar 9. október 2016 20:30 Íslensku strákarnir fagna marki Theodórs Elmars. vísir/ernir Karlalandslið Íslands vann frábæran sigur á Tyrkjum í undankeppni heimsmeistaramótsins á Laugardalsvellinum í kvöld. Lokatölur urðu 2-0 og komu bæði mörkin í fyrri hálfleik. Frammistaða Íslands í kvöld var frábær og sigurinn fyllilega sanngjarn. Íslenska liðið kom mikið grimmara til leiks undan vindinum og baráttan var til fyrirmyndar með fyrirliðann Gylfa Sigurðsson úti um allan völl, drífandi sína menn áfram. Tyrkir virtust ekki kunna við íslenska haustveðrið því þeir komust varla í sókn og voru undir í flestum návígjum. Fyrsta alvöru færið kom á 12.mínútu þegar Alfreð Finnbogason var allt í einu einn á auðum sjó við vítateiginn. Alfreð var hins vegar allt of lengi að athafna sig, reyndi að leika á varnarmann Tyrkja og færið rann út í sandinn.vísir/vilhelmKærkomið sjálfsmark Jóhann Berg Guðmundsson var frábær á hægri kantinum í fyrri hálfleik og hann sýndi hvað eftir annað frábær tilþrif. Sá eini af Tyrkjunum sem sýndi eitthvað sóknarlega var Emre Mor, „Litli Messi“, en augljóst er að hann býr yfir miklum hæfileikum. Hann komst hins vegar lítið áleiðis gegn íslensku vörninni. Á 42. mínútu kom fyrsta markið. Gylfi og Jóhann Berg spiluðu frábærlega saman á hægri kantinum og Jóhann kom boltanum til Theódórs Elmars Bjarnasonar fyrir utan teiginn. Theódór Elmar átti skot sem fór í varnarmann Tyrkja, breytti um stefnu og endaði í netinu. Sjálfsmark og Ísland komið yfir. Tveimur mínútum síðar dró svo aftur til tíðinda. Miðvörðurinn Kári Árnason átti skalla úr vörninni yfir alla leikmenn Tyrkja og skyndilega var Alfreð kominn einn í gegn. Í þetta sinn var hann ekkert að hika og kláraði færið frábærlega, tók boltann á lofti og Babacan í marki Tyrklands átti ekki möguleika.Gríðarleg vinnusemi um allan völl Seinni hálfleikur hófst á svipaðan hátt og sá fyrri. Íslendingar voru mikið grimmari og maður sá langar leiðir hversu mikið íslensku leikmennina langaði að vinna tyrkneska liðið Tyrkir voru búnir að gera allar þrjár skiptingar sínar eftir 67 mínútur en það breytti engu. Vinnusemin í íslenska liðinu var frábær og tyrknesku leikmennirnir fengu engan frið til að skapa sér færi þegar þeir voru með boltann. Síðustu mínútur leiksins voru fremur tíðindalitlar og 2-0 sigur Íslands staðreynd sem þar með eru komnir með 7 stig í riðlinum og eru jafnir Króötum að stigum í tveimur efstu sætum riðilsins. Króatar þó með betri markatölu. Úkraínumenn hafa fimm stig eftir sigur á Kósóvó í dag en Tyrkir eru með 2 stig í fjórða sætinu.vísir/andri marinóTheodór Elmar fagnar fyrsta markinu.vísir/andri marinóvísir/anton brinkÞað var mikil stemmning á Laugardalsvellinum í kvöld.vísir/andri marinó HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Hrærð yfir viðbrögðum Þóris: „Fæ bara kökk í hálsinn“ Handbolti Leikmaður Man. United neitaði að klæðast regnbogalituðum jakka Enski boltinn Breyta fótboltareglunum vegna Arteta Enski boltinn Luke Shaw algjörlega niðurbrotinn Enski boltinn Salah með tvö en Kelleher gaf jöfnunarmark undir lokin Enski boltinn Rondey rakaði af sér hárið til stuðnings Skúla Körfubolti Í beinni: Arsenal - Man. Utd | Fyrsti stórleikur nýja stjórans Enski boltinn Amorim varar stuðningsmenn United við: Óveðrið mun koma Enski boltinn Hunsaði varnaðarorðin og skrifaði aftur um ást Jesú á fyrirliðabandið sitt Enski boltinn Reiddist fréttamanni: Veist við hvern þú ert að tala Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Man. Utd | Fyrsti stórleikur nýja stjórans Í beinni: Bilbao - Real Madrid | Fjórði í röð hjá gestunum? Í beinni: Man. City - Nott. Forest | Meistarar í krísu Í beinni: Newcastle - Liverpool | Tekst að stöðva toppliðið? Í beinni: Southampton - Chelsea | Heitir gestir gegn botnliðinu Stjarnan kaupir Benedikt frá Vestra Dregið í riðla fyrir HM félagsliða sem verður sýnt ókeypis Van Dijk boðinn nýr samningur „Haldið þið að ég vilji ekki nota Kevin?“ Damir spilar með liði frá Brúnei Leikmaður Man. United neitaði að klæðast regnbogalituðum jakka Fékk ekki að fara inn á út af pínlegu klúðri Breyta fótboltareglunum vegna Arteta Amorim varar stuðningsmenn United við: Óveðrið mun koma Hunsaði varnaðarorðin og skrifaði aftur um ást Jesú á fyrirliðabandið sitt Luke Shaw algjörlega niðurbrotinn Reiddist fréttamanni: Veist við hvern þú ert að tala Tveir nýliðar í hópi þjóða sem Ísland gæti mætt á EM í Sviss Draumabyrjun hjá Nistelrooy Neuer sá rautt og Bayern enn á ný úr leik Stórsigur eftir erfiða tíma hjá Barcelona Dramatískt mark Ísabellu tryggði Íslandi áfram Grínaðist með 115 ákærur City: „Ég endurtek, þetta var grín“ Amorim vill ekki að stuðningsmenn United syngi nafnið hans Ashley Young gæti mætt syni sínum í enska bikarnum Van Nistelrooy sár yfir því að hafa verið látinn fara frá United Fengu fernu á sig frá Atla í miðju Evrópuævintýri Neitaði að sýna regnbogaliti og félagið segist virða það Svaraði baulinu með marki og reif sig úr að ofan Arsenal dróst gegn Man. Utd en Liverpool og Tottenham heppin Sjá meira
Karlalandslið Íslands vann frábæran sigur á Tyrkjum í undankeppni heimsmeistaramótsins á Laugardalsvellinum í kvöld. Lokatölur urðu 2-0 og komu bæði mörkin í fyrri hálfleik. Frammistaða Íslands í kvöld var frábær og sigurinn fyllilega sanngjarn. Íslenska liðið kom mikið grimmara til leiks undan vindinum og baráttan var til fyrirmyndar með fyrirliðann Gylfa Sigurðsson úti um allan völl, drífandi sína menn áfram. Tyrkir virtust ekki kunna við íslenska haustveðrið því þeir komust varla í sókn og voru undir í flestum návígjum. Fyrsta alvöru færið kom á 12.mínútu þegar Alfreð Finnbogason var allt í einu einn á auðum sjó við vítateiginn. Alfreð var hins vegar allt of lengi að athafna sig, reyndi að leika á varnarmann Tyrkja og færið rann út í sandinn.vísir/vilhelmKærkomið sjálfsmark Jóhann Berg Guðmundsson var frábær á hægri kantinum í fyrri hálfleik og hann sýndi hvað eftir annað frábær tilþrif. Sá eini af Tyrkjunum sem sýndi eitthvað sóknarlega var Emre Mor, „Litli Messi“, en augljóst er að hann býr yfir miklum hæfileikum. Hann komst hins vegar lítið áleiðis gegn íslensku vörninni. Á 42. mínútu kom fyrsta markið. Gylfi og Jóhann Berg spiluðu frábærlega saman á hægri kantinum og Jóhann kom boltanum til Theódórs Elmars Bjarnasonar fyrir utan teiginn. Theódór Elmar átti skot sem fór í varnarmann Tyrkja, breytti um stefnu og endaði í netinu. Sjálfsmark og Ísland komið yfir. Tveimur mínútum síðar dró svo aftur til tíðinda. Miðvörðurinn Kári Árnason átti skalla úr vörninni yfir alla leikmenn Tyrkja og skyndilega var Alfreð kominn einn í gegn. Í þetta sinn var hann ekkert að hika og kláraði færið frábærlega, tók boltann á lofti og Babacan í marki Tyrklands átti ekki möguleika.Gríðarleg vinnusemi um allan völl Seinni hálfleikur hófst á svipaðan hátt og sá fyrri. Íslendingar voru mikið grimmari og maður sá langar leiðir hversu mikið íslensku leikmennina langaði að vinna tyrkneska liðið Tyrkir voru búnir að gera allar þrjár skiptingar sínar eftir 67 mínútur en það breytti engu. Vinnusemin í íslenska liðinu var frábær og tyrknesku leikmennirnir fengu engan frið til að skapa sér færi þegar þeir voru með boltann. Síðustu mínútur leiksins voru fremur tíðindalitlar og 2-0 sigur Íslands staðreynd sem þar með eru komnir með 7 stig í riðlinum og eru jafnir Króötum að stigum í tveimur efstu sætum riðilsins. Króatar þó með betri markatölu. Úkraínumenn hafa fimm stig eftir sigur á Kósóvó í dag en Tyrkir eru með 2 stig í fjórða sætinu.vísir/andri marinóTheodór Elmar fagnar fyrsta markinu.vísir/andri marinóvísir/anton brinkÞað var mikil stemmning á Laugardalsvellinum í kvöld.vísir/andri marinó
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Hrærð yfir viðbrögðum Þóris: „Fæ bara kökk í hálsinn“ Handbolti Leikmaður Man. United neitaði að klæðast regnbogalituðum jakka Enski boltinn Breyta fótboltareglunum vegna Arteta Enski boltinn Luke Shaw algjörlega niðurbrotinn Enski boltinn Salah með tvö en Kelleher gaf jöfnunarmark undir lokin Enski boltinn Rondey rakaði af sér hárið til stuðnings Skúla Körfubolti Í beinni: Arsenal - Man. Utd | Fyrsti stórleikur nýja stjórans Enski boltinn Amorim varar stuðningsmenn United við: Óveðrið mun koma Enski boltinn Hunsaði varnaðarorðin og skrifaði aftur um ást Jesú á fyrirliðabandið sitt Enski boltinn Reiddist fréttamanni: Veist við hvern þú ert að tala Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Arsenal - Man. Utd | Fyrsti stórleikur nýja stjórans Í beinni: Bilbao - Real Madrid | Fjórði í röð hjá gestunum? Í beinni: Man. City - Nott. Forest | Meistarar í krísu Í beinni: Newcastle - Liverpool | Tekst að stöðva toppliðið? Í beinni: Southampton - Chelsea | Heitir gestir gegn botnliðinu Stjarnan kaupir Benedikt frá Vestra Dregið í riðla fyrir HM félagsliða sem verður sýnt ókeypis Van Dijk boðinn nýr samningur „Haldið þið að ég vilji ekki nota Kevin?“ Damir spilar með liði frá Brúnei Leikmaður Man. United neitaði að klæðast regnbogalituðum jakka Fékk ekki að fara inn á út af pínlegu klúðri Breyta fótboltareglunum vegna Arteta Amorim varar stuðningsmenn United við: Óveðrið mun koma Hunsaði varnaðarorðin og skrifaði aftur um ást Jesú á fyrirliðabandið sitt Luke Shaw algjörlega niðurbrotinn Reiddist fréttamanni: Veist við hvern þú ert að tala Tveir nýliðar í hópi þjóða sem Ísland gæti mætt á EM í Sviss Draumabyrjun hjá Nistelrooy Neuer sá rautt og Bayern enn á ný úr leik Stórsigur eftir erfiða tíma hjá Barcelona Dramatískt mark Ísabellu tryggði Íslandi áfram Grínaðist með 115 ákærur City: „Ég endurtek, þetta var grín“ Amorim vill ekki að stuðningsmenn United syngi nafnið hans Ashley Young gæti mætt syni sínum í enska bikarnum Van Nistelrooy sár yfir því að hafa verið látinn fara frá United Fengu fernu á sig frá Atla í miðju Evrópuævintýri Neitaði að sýna regnbogaliti og félagið segist virða það Svaraði baulinu með marki og reif sig úr að ofan Arsenal dróst gegn Man. Utd en Liverpool og Tottenham heppin Sjá meira