Methagnaður hjá Commerzbank þrátt fyrir afskriftir 15. febrúar 2008 09:34 Klaus Peter Muller, fráfarandi forstjóri Commerzbank, sem hættir í maí. Mynd/AFP
Commerzbank, næststærsti banki Þýskaland skilaði rúmlega 1,9 milljarða evra hagnaði á síðasta ári. Þetta jafngildir rúmum 188 milljörðum íslenskra króna, sem er 20 prósenta aukning á milli ára og mesti hagnaður í sögu hans. Fjórði ársfjórðungur setti hins vegar strik í reikninginn en þá nam hagnaðurinn 201 milljón evra, sem er 44 prósenta samdráttur á milli ára. Mestu munar um tap á verðbréfa- lánavöndlum upp á 248 milljónir evra en bankinn varð að afskrifa 583 milljónir evra af þessum sökum. Klaus Peter Muller, fráfarandi forstjóri Commerzbank, segir útlit fyrir erfitt ár og megi reikna með að kostnaður muni aukast frekar af þeim sökum. FL Group átti um tíma í fyrra 4,25 prósenta hlut í bankanum, en hefur minnkað hann hratt síðan og á nú minna en eitt prósent í honum.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Opinberir starfsmenn séu með nítján prósent betri kjör Viðskipti innlent Hittust á stefnumótaappi og blása nú lífi í týndar sögur Atvinnulíf Ásdís Eir, Aðalheiður og Ólöf Helga nýir forstöðumenn hjá Lyfju Viðskipti innlent Hefur styrkt KR um 300 milljónir Viðskipti innlent Wok to Walk opnar á Smáratorgi Viðskipti innlent Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Viðskipti erlent Tilnefningar til bestu íslensku vörumerkjanna Viðskipti innlent Kaup Símans á Noona gengin í gegn Viðskipti innlent Breytir gömlu heilsugæslunni í sex íbúðir Viðskipti innlent Verð á kaffi sögulega hátt Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Verð á kaffi sögulega hátt Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Vona að Musk takmarki tolla Trumps Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sjá meira