Innlent

Gekk betur en óttast var

Samúel Karl Ólason skrifar
Samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur allt gengið vel fyrir sig í umferðinni.
Samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur allt gengið vel fyrir sig í umferðinni. Vísir/Sigurjón

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu undir kvöld virðist hafa gengið betur en óttast var, þó hún hafi farið hægar en gengu og gerist. Segja má að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi upplifað sinn fyrsta vetrardag í dag.

Lögregluþjónar höfðu reiknað með því að hafa nóg að gera í umferðinni seinni partinn í dag en það raungerðist ekki.

Samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur allt gengið vel fyrir sig í umferðinni. Lítið hafi verið af árekstrum og engir alvarlegir slíkir eða slys á fólki hafi ratað á borð lögreglunnar.

Svipaða sögu er að segja frá slökkviliðinu. Engin útköll hafa verið vegna umferðarinnar undir kvöld.

„Við höfum alveg sloppið,“ sagði vaktstjóri þar.

Fyrr í dag bárust fregnir af árekstrum og óhöppum á Reykjanesbrautinni. Engin fregnir bárust þó af slysum á fólki.

Sjá einnig: Ástand á Reykjanesbrautinni

Þá hafði Vegagerðin varað við erfiðum aðstæðum á Reykjanesbraut og víðar, vegna hvassviðris, éljagangs og hálku. Voru vegfarendur beðnir um að fara varlega og vera á vel útbúnum bílum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×