Handbolti

Sjö­tti sigurinn í röð hjá Janusi Daða og fé­lögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Janus Daði Smárason stjórnar sóknarleik Szeged liðsins af röggsemi.
Janus Daði Smárason stjórnar sóknarleik Szeged liðsins af röggsemi. Vísir/Vilhelm

Janus Daði Smárason og félagar í Bank-Pick Szeged komust í kvöld upp að hlið Veszprem á toppi ungversku deildarinnar í handbolta.

Bank-Pick Szeged vann þá fimm marka útisigur á Carbonex-Komló, 33-28. Szeged var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 19-15.

Íslendingaliðin eru nú jöfn að stigum í efsta sæti deildarinnar með tólf sigra í þrettán leikjum en Szeged vann innbyrðis leik liðanna á dögunum og tekur því toppsætið.

Janus Daði skoraði þrjú mörk í leiknum og nýtt öll skotin sín.Hann skoraði níunda og sextánda mark liðsins í fyrri hálfleiknum og kom liðinu síðan í 30-26 á lokakaflanum.

Szeged hefur unnuð sex deildarleiki í röð eða alla leiki síðan liðið tapaði frekar óvænt á móti Csurgoi 19. október síðastliðnum. Einn af þessum sex sigurleikur er 28-24 sigur á móti Veszprem 16. nóvember.

Benjámin Szilágyi var markahæstur hjá liðinu í dag með sex mörk en þeir Mario Sostaric, Bence Bánhidi og Magnus Abelvik Röd skoruðu fjögur mörk hver.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×