Vísindi Hljóta Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á sviði smellefnafræði Efnafræðingarnir Carolyn R. Bertozzi frá Bandaríkjunum, Morten Meldal frá Danmörku and K. Barry Sharpless frá Bandaríkjunum hljóta Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Þeir fá verðlaunin fyrir rannsóknir sínar á sviði smellefnafræði. Erlent 5.10.2022 09:52 Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Erlent 5.10.2022 09:16 Tíu þúsund kílómetra hali eftir áreksturinn við geimfarið Um tíu þúsund kílómetra langur hali af braki gengur nú aftur úr smástirni sem bandarískt geimfar skall á í síðasta mánuði. Vísindamenn búast við því að halinn lengist og þynnist enn meira út þar til hann verður ekki lengur greinanlegur. Erlent 4.10.2022 21:08 Hljóta Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði Eðlisfræðingarnir Alain Aspect frá Frakklandi, John F. Clauser frá Bandaríkjunum og Anton Zeilinger frá Austurríki hljóta Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði. Erlent 4.10.2022 09:56 Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár. Erlent 4.10.2022 09:16 Hlýtur Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á genamengi útdauðra manntegunda Sænski erfðafræðingurinn Svante Pääbo hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífefnafræði og læknisfræði í ár fyrir rannsóknir sínar á erfðamengi útdauðra manntegunda og þróun mannsins. Erlent 3.10.2022 09:38 Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. Erlent 3.10.2022 09:01 Fyrstu myndirnar af vatnaveröldinni Evrópu í tuttugu ár Könnunarfarið Júnó er byrjað að senda myndir frá nærflugi sínu hjá ístunglinu Evrópu við Júpíter. Myndirnar eru þær fyrstu af tunglinu frá því að Galíleó flaug þar fram hjá fyrir 22 árum. Talið er að haf fljótandi vatns sé að finna undir ísilögðu yfirborði Evrópu þar sem líf gæti mögulega þrifist. Erlent 30.9.2022 11:24 NASA og SpaceX vilja lengja líftíma Hubble Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX hafa gert samkomulag um tilraunaverkefni sem snýr að því að hækka mögulega sporbraut geimsjónaukans Hubble og lengja líftíma hans. Það voru forsvarsmenn SpaceX og Polaris Program sem leituðu til NASA og lögðu til að möguleiki þess að þjónusta Hubble á þennan hátt, og mögulega aðra gervihnetti, yrði rannsakaður. Erlent 30.9.2022 10:27 Hvetur almenning að líta upp Júpíter, stærsta reikistjarna sólkerfisins, hefur ekki verið nær jörðinni í tæp sextíu ár. Hann er ægibjartur og verður áberandi á næturhimninum næstu daga. Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðikennari og vísindamiðlari, hvetur almenning til að líta upp. Innlent 26.9.2022 22:06 Risastór viðburður innan vísindasamfélagsins Í kvöld fer fram risastór viðburður innan stjörnufræðisamfélagsins þegar NASA, geimvísindastofnun Bandaríkjanna, gerir tilraun til að færa smástirni. Það verður gert með því að brotlenda geimfarinu DART á smástirninu og allt fer þetta fram í beinni útsendingu. Erlent 26.9.2022 21:44 Skýrasta myndin af Neptúnusi í þrjátíu ár Ekki frá því að könnunarfarið Voyager 2 flaug fram hjá fyrir meira en þrjátíu árum hafa menn fengið eins skarpa mynd af ísrisanum Neptúnusi og James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega af honum. Hringir plánetunnar og stærstu tungl eru greinileg á myndinni. Erlent 21.9.2022 14:55 Nemendur flykkjast heim að Hólum að læra fiskeldi Sprenging hefur orðið í fjölda nemenda í fiskeldisnámi við Háskólann á Hólum og stunda núna um áttatíu manns nám í faginu. Samtímis fer þar fram rannsóknar- og kynbótastarf í fiskeldi. Innlent 20.9.2022 23:13 Veiðiferð vísindamanna skilar vænum fiskafla úr Elliðavatni Fiskstofnar í Elliðavatni dafna vel, samkvæmt árlegri úttekt vísindamanna, sem fengu hátt í þrjúhundruð væna silunga í net sín á einum sólarhring. Bleikju hefur þó fækkað, en sama þróun sést víðar á landinu, og er talin geta tengst hnattrænni hlýnun. Innlent 14.9.2022 21:42 Eldgosið í Fagradalsfjalli frábrugðið öðrum eldgosum Vísindamenn segja undanfara eldgossins í Fagradalsfjalli hafa verið ólíkan undanförum annarra eldgosa í heiminum. Fyrir gosið dró úr skjálftavirkni, en algengara er að jarðskjálftavirkni aukist fyrir gos, þegar kvika þrýstir sér upp á yfirborðið. Þeir segja niðurstaða rannsóknar um eldgosið í Fagradalsfjalli mikilvæga fyrir alþjóðasamfélagið. Innlent 14.9.2022 20:37 Bein útsending: Hættu við aðra tilraun vegna leka Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) eru hættir við að reyna að skjóta Artemis-1 af stað til tunglsins í kvöld. Hætt var við aðra tilraun til fyrsta tunglskots Artemis-áætlunarinnar vegna leka á einum af elsdneytistönkum Space Launch System-eldflaugarinnar. Erlent 3.9.2022 14:30 Hætt við fyrsta geimskot Artemis-áætlunarinnar Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa hætt við að skjóta fyrsta geimfari Artemis-áætlunarinnar á loft í dag. Var það gert vegna bilunar í einum af fjórum aðalhreyflum Space Launch System-eldflaugarinnar. Erlent 29.8.2022 09:31 Webb greindi koltvísýring í andrúmslofti fjarreikistjörnu Geimvísindamenn hafa fundið skýr og greinileg ummerki koltvísýrings í andrúmslofti gasrisa í annarri stjörnuþoku. Þetta er í fyrsta sinn sem koltvísýringur greinst í andrúmslofti fjarreikistjörnu. Erlent 25.8.2022 23:46 NASA deildi óhugnanlegri hljóðupptöku af svartholi NASA deildi síðastliðinn sunnudag hljóðupptöku af svartholi úr miðju Perseusar-stjörnuþokuklasanum sem er meira en tvö hundruð milljón ljósár frá jörðinni. Erlent 23.8.2022 09:02 Gæði nýrra mynda af Júpíter komu á óvart Geimvísindamenn birtu í dag nýjar myndir af gasrisanum Júpíter sem teknar voru með James Webb-geimsjónaukanum. Júpíter er áhugaverð reikistjarna og vonast vísindamenn til þess að skilja hana mun betur með gögnunum frá James Webb. Erlent 22.8.2022 22:17 „Eiginlega alveg öruggt“ að gosinu sé lokið Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, segir að það sé eiginlega alveg öruggt að eldgosinu í Meradölum sé lokið. Innlent 22.8.2022 09:23 Ætla að þvinga rigningu úr skýjum í von um að bjarga uppskerum Yfirvöld í Kína hyggjast framkalla rigningu með því að sá efnum í ský til að vernda kornuppskeru landsins. Sumarið í ár er það heitasta og þurrasta frá því mælingar hófust í Kína fyrir 61 ári. Vegna þess hafa uppskerur visnað og uppistöðulón eru helmingi vatnsminni en venjulega. Erlent 22.8.2022 07:52 Fyrstu Starlink-rákirnar á næturhimni yfir Íslandi Fyrstu Starlink-gervihnettirnir frá fyrirtækinu SpaceX hafa sést á himni yfir Íslandi. Þeim var skotið á loft fyrir nokkrum dögum og farnir að setja mark sitt á næturhimininn yfir Íslandi. Gervihnöttum sem þessum mun fara hratt fjölgandi og munu þeir hafa mikil áhrif á ásýnd himinsins. Innlent 18.8.2022 15:20 Komin á skotpall fyrir fyrstu tunglferðina Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) luku í dag við að flytja fyrstu eldflaug Artemis-áætlunarinnar á skotpall í Flórída. Var það gert fyrir fyrstu tunglferð áætlunarinnar en til stendur að skjóta eldflauginni á loft eftir tæpar tvær vikur. Erlent 17.8.2022 15:09 Gæti liðið að goslokum á næstu dögum Dregið gæti að goslokum á næstu dögum að mati eldfjallafræðings þar sem hraunflæðið nálgast lágmarksþröskuld. Lokað er inn á svæðið í dag vegna veðurs Innlent 17.8.2022 12:01 Glóandi bráð úr gosinu í fyrra kreistist úr gamla hrauninu vegna þrýstings frá því nýja Bráð úr hrauninu sem rann úr eldgosinu við Fagradalsfjall í fyrra hefur kreist út um hraunið vegna þunga nýja hraunsins sem rennur úr eldgosinu í Meradölum. Þessir kraftar gera það að verkum að enn varasamara getur verið að ganga á gamla hrauninu. Innlent 16.8.2022 20:29 Styttist í fyrstu tunglferðina Forsvarsmenn Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna (NASA) hafa sett stefnuna á því að fyrsta tunglferð Artemis-áætlunarinnar verði farin þann 29. ágúst. Þá verður geimfari skotið til tunglsins og flogið hring þar í kring og til baka. Erlent 9.8.2022 13:11 Flakkari á siglingu um hrauntjörnina Það kennir ýmissa grasa þegar eldgos eiga í hlut. Eitt af því eru fyrirbæri sem minnir á fljótandi borgarísjaka í hrauntjörninni og hefur fengið heitið flakkari hér á landi. Innlent 8.8.2022 12:09 Höfundur Gaia-kenningarinnar er látinn Breski vísindamaðurinn James Lovelock sem þekktastur er fyrir Gaia-kenninguna lést í gær. Hann fæddist þann 26. júlí árið 1908 og lést því á 103 ára afmælisdaginn. Erlent 27.7.2022 14:50 Segja niðurstöður rannsóknar á grameðlum rangar Rannsókn frá jarðvísindadeild Edinborgarháskóla sýnir fram á að þeir steingervingar sem hafa fundist af grameðlum komi ekki frá þremur tegundum eðlunnar líkt og greint var frá í tímaritinu Evolutionary Biology í mars á þessu ári. Steingervingarnir sem voru rannsakaðir komi vissulega frá misstórum dýrum en eðlurnar voru, rétt eins og við mannfólkið, til í fleiri stærðum og gerðum en einni. Erlent 26.7.2022 10:26 « ‹ 8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 52 ›
Hljóta Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á sviði smellefnafræði Efnafræðingarnir Carolyn R. Bertozzi frá Bandaríkjunum, Morten Meldal frá Danmörku and K. Barry Sharpless frá Bandaríkjunum hljóta Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Þeir fá verðlaunin fyrir rannsóknir sínar á sviði smellefnafræði. Erlent 5.10.2022 09:52
Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Erlent 5.10.2022 09:16
Tíu þúsund kílómetra hali eftir áreksturinn við geimfarið Um tíu þúsund kílómetra langur hali af braki gengur nú aftur úr smástirni sem bandarískt geimfar skall á í síðasta mánuði. Vísindamenn búast við því að halinn lengist og þynnist enn meira út þar til hann verður ekki lengur greinanlegur. Erlent 4.10.2022 21:08
Hljóta Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði Eðlisfræðingarnir Alain Aspect frá Frakklandi, John F. Clauser frá Bandaríkjunum og Anton Zeilinger frá Austurríki hljóta Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði. Erlent 4.10.2022 09:56
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár. Erlent 4.10.2022 09:16
Hlýtur Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á genamengi útdauðra manntegunda Sænski erfðafræðingurinn Svante Pääbo hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífefnafræði og læknisfræði í ár fyrir rannsóknir sínar á erfðamengi útdauðra manntegunda og þróun mannsins. Erlent 3.10.2022 09:38
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. Erlent 3.10.2022 09:01
Fyrstu myndirnar af vatnaveröldinni Evrópu í tuttugu ár Könnunarfarið Júnó er byrjað að senda myndir frá nærflugi sínu hjá ístunglinu Evrópu við Júpíter. Myndirnar eru þær fyrstu af tunglinu frá því að Galíleó flaug þar fram hjá fyrir 22 árum. Talið er að haf fljótandi vatns sé að finna undir ísilögðu yfirborði Evrópu þar sem líf gæti mögulega þrifist. Erlent 30.9.2022 11:24
NASA og SpaceX vilja lengja líftíma Hubble Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX hafa gert samkomulag um tilraunaverkefni sem snýr að því að hækka mögulega sporbraut geimsjónaukans Hubble og lengja líftíma hans. Það voru forsvarsmenn SpaceX og Polaris Program sem leituðu til NASA og lögðu til að möguleiki þess að þjónusta Hubble á þennan hátt, og mögulega aðra gervihnetti, yrði rannsakaður. Erlent 30.9.2022 10:27
Hvetur almenning að líta upp Júpíter, stærsta reikistjarna sólkerfisins, hefur ekki verið nær jörðinni í tæp sextíu ár. Hann er ægibjartur og verður áberandi á næturhimninum næstu daga. Sævar Helgi Bragason, stjörnufræðikennari og vísindamiðlari, hvetur almenning til að líta upp. Innlent 26.9.2022 22:06
Risastór viðburður innan vísindasamfélagsins Í kvöld fer fram risastór viðburður innan stjörnufræðisamfélagsins þegar NASA, geimvísindastofnun Bandaríkjanna, gerir tilraun til að færa smástirni. Það verður gert með því að brotlenda geimfarinu DART á smástirninu og allt fer þetta fram í beinni útsendingu. Erlent 26.9.2022 21:44
Skýrasta myndin af Neptúnusi í þrjátíu ár Ekki frá því að könnunarfarið Voyager 2 flaug fram hjá fyrir meira en þrjátíu árum hafa menn fengið eins skarpa mynd af ísrisanum Neptúnusi og James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega af honum. Hringir plánetunnar og stærstu tungl eru greinileg á myndinni. Erlent 21.9.2022 14:55
Nemendur flykkjast heim að Hólum að læra fiskeldi Sprenging hefur orðið í fjölda nemenda í fiskeldisnámi við Háskólann á Hólum og stunda núna um áttatíu manns nám í faginu. Samtímis fer þar fram rannsóknar- og kynbótastarf í fiskeldi. Innlent 20.9.2022 23:13
Veiðiferð vísindamanna skilar vænum fiskafla úr Elliðavatni Fiskstofnar í Elliðavatni dafna vel, samkvæmt árlegri úttekt vísindamanna, sem fengu hátt í þrjúhundruð væna silunga í net sín á einum sólarhring. Bleikju hefur þó fækkað, en sama þróun sést víðar á landinu, og er talin geta tengst hnattrænni hlýnun. Innlent 14.9.2022 21:42
Eldgosið í Fagradalsfjalli frábrugðið öðrum eldgosum Vísindamenn segja undanfara eldgossins í Fagradalsfjalli hafa verið ólíkan undanförum annarra eldgosa í heiminum. Fyrir gosið dró úr skjálftavirkni, en algengara er að jarðskjálftavirkni aukist fyrir gos, þegar kvika þrýstir sér upp á yfirborðið. Þeir segja niðurstaða rannsóknar um eldgosið í Fagradalsfjalli mikilvæga fyrir alþjóðasamfélagið. Innlent 14.9.2022 20:37
Bein útsending: Hættu við aðra tilraun vegna leka Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) eru hættir við að reyna að skjóta Artemis-1 af stað til tunglsins í kvöld. Hætt var við aðra tilraun til fyrsta tunglskots Artemis-áætlunarinnar vegna leka á einum af elsdneytistönkum Space Launch System-eldflaugarinnar. Erlent 3.9.2022 14:30
Hætt við fyrsta geimskot Artemis-áætlunarinnar Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa hætt við að skjóta fyrsta geimfari Artemis-áætlunarinnar á loft í dag. Var það gert vegna bilunar í einum af fjórum aðalhreyflum Space Launch System-eldflaugarinnar. Erlent 29.8.2022 09:31
Webb greindi koltvísýring í andrúmslofti fjarreikistjörnu Geimvísindamenn hafa fundið skýr og greinileg ummerki koltvísýrings í andrúmslofti gasrisa í annarri stjörnuþoku. Þetta er í fyrsta sinn sem koltvísýringur greinst í andrúmslofti fjarreikistjörnu. Erlent 25.8.2022 23:46
NASA deildi óhugnanlegri hljóðupptöku af svartholi NASA deildi síðastliðinn sunnudag hljóðupptöku af svartholi úr miðju Perseusar-stjörnuþokuklasanum sem er meira en tvö hundruð milljón ljósár frá jörðinni. Erlent 23.8.2022 09:02
Gæði nýrra mynda af Júpíter komu á óvart Geimvísindamenn birtu í dag nýjar myndir af gasrisanum Júpíter sem teknar voru með James Webb-geimsjónaukanum. Júpíter er áhugaverð reikistjarna og vonast vísindamenn til þess að skilja hana mun betur með gögnunum frá James Webb. Erlent 22.8.2022 22:17
„Eiginlega alveg öruggt“ að gosinu sé lokið Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, segir að það sé eiginlega alveg öruggt að eldgosinu í Meradölum sé lokið. Innlent 22.8.2022 09:23
Ætla að þvinga rigningu úr skýjum í von um að bjarga uppskerum Yfirvöld í Kína hyggjast framkalla rigningu með því að sá efnum í ský til að vernda kornuppskeru landsins. Sumarið í ár er það heitasta og þurrasta frá því mælingar hófust í Kína fyrir 61 ári. Vegna þess hafa uppskerur visnað og uppistöðulón eru helmingi vatnsminni en venjulega. Erlent 22.8.2022 07:52
Fyrstu Starlink-rákirnar á næturhimni yfir Íslandi Fyrstu Starlink-gervihnettirnir frá fyrirtækinu SpaceX hafa sést á himni yfir Íslandi. Þeim var skotið á loft fyrir nokkrum dögum og farnir að setja mark sitt á næturhimininn yfir Íslandi. Gervihnöttum sem þessum mun fara hratt fjölgandi og munu þeir hafa mikil áhrif á ásýnd himinsins. Innlent 18.8.2022 15:20
Komin á skotpall fyrir fyrstu tunglferðina Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) luku í dag við að flytja fyrstu eldflaug Artemis-áætlunarinnar á skotpall í Flórída. Var það gert fyrir fyrstu tunglferð áætlunarinnar en til stendur að skjóta eldflauginni á loft eftir tæpar tvær vikur. Erlent 17.8.2022 15:09
Gæti liðið að goslokum á næstu dögum Dregið gæti að goslokum á næstu dögum að mati eldfjallafræðings þar sem hraunflæðið nálgast lágmarksþröskuld. Lokað er inn á svæðið í dag vegna veðurs Innlent 17.8.2022 12:01
Glóandi bráð úr gosinu í fyrra kreistist úr gamla hrauninu vegna þrýstings frá því nýja Bráð úr hrauninu sem rann úr eldgosinu við Fagradalsfjall í fyrra hefur kreist út um hraunið vegna þunga nýja hraunsins sem rennur úr eldgosinu í Meradölum. Þessir kraftar gera það að verkum að enn varasamara getur verið að ganga á gamla hrauninu. Innlent 16.8.2022 20:29
Styttist í fyrstu tunglferðina Forsvarsmenn Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna (NASA) hafa sett stefnuna á því að fyrsta tunglferð Artemis-áætlunarinnar verði farin þann 29. ágúst. Þá verður geimfari skotið til tunglsins og flogið hring þar í kring og til baka. Erlent 9.8.2022 13:11
Flakkari á siglingu um hrauntjörnina Það kennir ýmissa grasa þegar eldgos eiga í hlut. Eitt af því eru fyrirbæri sem minnir á fljótandi borgarísjaka í hrauntjörninni og hefur fengið heitið flakkari hér á landi. Innlent 8.8.2022 12:09
Höfundur Gaia-kenningarinnar er látinn Breski vísindamaðurinn James Lovelock sem þekktastur er fyrir Gaia-kenninguna lést í gær. Hann fæddist þann 26. júlí árið 1908 og lést því á 103 ára afmælisdaginn. Erlent 27.7.2022 14:50
Segja niðurstöður rannsóknar á grameðlum rangar Rannsókn frá jarðvísindadeild Edinborgarháskóla sýnir fram á að þeir steingervingar sem hafa fundist af grameðlum komi ekki frá þremur tegundum eðlunnar líkt og greint var frá í tímaritinu Evolutionary Biology í mars á þessu ári. Steingervingarnir sem voru rannsakaðir komi vissulega frá misstórum dýrum en eðlurnar voru, rétt eins og við mannfólkið, til í fleiri stærðum og gerðum en einni. Erlent 26.7.2022 10:26