Vísindi Telja sig hafa komist að því hvers vegna heilafrumurnar deyja Vísindamenn í Bretlandi og Belgíu telja sig hafa komist að því af hverju heilafrumur deyja í Alzheimersjúklingum. Dauði heilafrumanna hefur verið ráðgáta í marga áratugi en vonir eru bundnar við að uppgötvunin greiði fyrir þróun nýrra lyfja við sjúkdómnum. Erlent 15.9.2023 08:30 Hvetja ríki til að banna inngrip til að stýra veðuröflunum Climate Overshoot Commission, alþjóðleg nefnd sérfræðinga á sviði loftslagsmála, hvetur stjórnvöld heims til að heimila vísindarannsóknir á inngripum í náttúrulega ferla á borð við veðrabreytingar en banna framkvæmd þeirra. Erlent 14.9.2023 08:57 Möguleg vatnaveröld með kolefnissamböndum í lofti Stjörnufræðingar hafa fundið kolefnissameindir í andrúmslofti fjarreikistjörnu sem styrkir tilgátur um að þar kunni að vera haf fljótandi vatns. Einnig fundust óskýrari merki um að þar sé að finna efnasamband sem aðeins sjóþörungar mynda á jörðinni. Erlent 13.9.2023 09:35 Milljóna styrkhafi segir gullöld runna upp í stjarneðlisfræði Íslenskur stjarneðlisfræðingur sem hlaut meira en tvö hundruð milljóna króna evrópskan styrk fyrir rannsóknir sínar segir að gullöld sé runnin upp í stjarneðlisfræði. Rannsóknirnar eiga að varpa ljósi á uppruna Vetrarbrautarinnar okkar og hvernig frumefnin urðu til. Innlent 11.9.2023 08:21 Konur eru betri skurðlæknar en karlar Eru konur betri skurðlæknar en karlar? Þessa spurningu lögðu vísindamenn í Kanada og Svíþjóð upp með fyrir nokkrum misserum og nú hefur svarið verið birt. Já, þær virðast vera talsvert betri skurðlæknar. Erlent 10.9.2023 14:02 Hlýjasta sumarið á norðurhveli frá upphafi Sumarið á norðurhveli var það hlýjasta sem hefur nokkru sinni mælst. Ágúst var hlýjasti ágústmánuður á jörðinni frá upphafi mælinga og næsthlýjasti mánuðurinn á eftir júlí í sumar. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir heimsbyggðina standa frammi fyrir „loftslagshruni“. Erlent 6.9.2023 10:23 Krabbameinsgreiningum hjá yngri en 50 ára fjölgað um 80 prósent Einstaklingum sem greinast með krabbamein áður en þeir verða 50 ára fjölgaði um 79 prósent á árunum 1990 til 2019. Dauðsföllum af völdum krabbameins fjölgaði um 27 prósent í umræddum aldurshóp. Erlent 6.9.2023 07:27 Fær 215 milljóna króna styrk til að rannsaka málnotkun þingmanna Anton Karl Ingason, dósent í íslenskri málfræði og máltækni við Háskóla Íslands, hefur fengið 1,5 milljóna evra styrk, jafnvirði um 215 milljóna króna, frá Evrópska rannsóknaráðinu til verkefnis sem miðar að því að skýra hvernig málnotkun fólks breytist á lífsleiðinni. Þetta er stærsti styrkur sem fengist hefur til rannsókna á íslenskum málvísindum. Innlent 5.9.2023 10:00 Afskræmd umfjöllun um áhrif hvala í tengslum við loftslagsmálin Samkvæmt stöðu þekkingar sem við höfum öðlast fyrir tilstuðlan fjölda alþjóðlegra rannsókna vitum við að hvalir og önnur stór sjávardýr hafa vistmótandi áhrif á umhverfi sitt. Þeir styrkja vistferla og stuðla að heilbrigði vistkerfa. Skoðun 31.8.2023 11:00 Átta sentímetra ormur úr pýtonslöngu fjarlægður úr heila konu Taugaskurðlækninum Hari Priya Bandi brá heldur betur í brún þegar hún fann átta sentímetra langan hringorm í framheila konu á sjúkrahúsi í Canberra í Ástralíu. Erlent 29.8.2023 07:15 Örlítið hækkuð gildi stórauka líkurnar á hjartaáföllum og dauða Einstaklingar á miðjum aldri sem eru í yfirþyngd og með örlítla blóðþrýstings-, kólesteról- eða blóðsykurshækkun eru þrefalt líklegri að deyja fyrir aldur fram en aðrir. Þá eru þeir 35 prósent líklegri til að fá hjartaáfall og heilablóðfall og upplifa þau tveimur árum fyrr en jafnaldrar þeirra. Erlent 25.8.2023 07:20 Rannsaka hvort þyngdarstjórnunarlyf gagnast gegn ýmsum sjúkdómum Vísindamenn hyggjast rannsaka hvort sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyf sem innihalda semaglutide geta hjálpað einstaklingum sem þjást af sjúkdómum á borð við fíkn og vitglöp. Erlent 21.8.2023 08:11 Svínsnýra með fulla virkni eftir mánuð í heiladauðum manni Svínsnýra sem var grætt í heiladauðan mann fyrir meira en mánuði síðan virkar enn og stefnt er að því að fylgjast með þróun mála í að minnsta kosti mánuð til viðbótar. Sérfræðingur segir nýrað starfa jafnvel enn betur en nýra úr manneskju. Erlent 17.8.2023 10:16 Vantrúaður á yfirlýsingar um byltingarkenndan ofurleiðara Prófessor í eðlisfræði segist vantrúaður á nýlegar fullyrðingar kóreskra vísindamanna um að þeir hafi fundið nýja tegund ofurleiðara sem vakið hafa mikla athygli. Uppgötvun á ofurleiðara við stofuhita gæti valdið gríðarlegum tækniframförum. Erlent 13.8.2023 08:01 Óhlýðni mýeinda hvarf ekki við enn nákvæmari mælingar Öreindafræðingar í Bandaríkjunum segja að hegðun svonefndra mýeinda ögri enn heimsmynd eðlisfræðinnar í nákvæmustu mælingum þeirra til þessa. Yrðu niðurstöður þeirra staðfestar gæti það bent til tilvistar áður óþekktrar víxlverkunar eða náttúrulögmáls. Erlent 11.8.2023 11:35 Kanna hvort fleira eigi þátt í methita Vísindamenn skoða nú möguleikann á því hvort að fleiri þættir en loftslagsbreytingar af völdum manna og El niño-veðurfyrirbrigðið beri ábyrgð á fordæmalausum hita í sumar. Risaeldgos í Kyrrahafi og minni skipamengun er á meðal þess sem kemur til greina. Erlent 9.8.2023 11:08 Segir hugmyndir Google aðför að höfundaréttinum Forsvarsmenn Google hafa lagt til að breytingar verði gerðar á höfundaréttarlögum til að heimila fyrirtækjum að mata gervigreind á öllum texta sem fyrirfinnst á netinu. Ef útgefendur vilja ekki að efni þeirra sé notað verði það undir þeim komið að láta vita. Erlent 9.8.2023 08:18 Stefnir í hlýjasta árið frá upphafi eftir funheita sumarmánuði Vaxandi líkur er á því að árið í ár verði það hlýjasta frá upphafi mælinga eftir fordæmalaust heita júní- og júlímánuði. Veðurfyrirbrigðið El niño í Kyrrahafi og hnattræn hlýnun af völdum manna leggjast nú á eitt um að þrýsta meðalhita jarðar upp í nýjar hæðir. Erlent 8.8.2023 09:32 Rannsaka áhrif hraunsins á innviði undir og yfir yfirborði Vísindamenn við Háskóla Íslands bíða þess nú að hraun renni yfir tilraunasvæði nærri Litla-Hrút en þar á að kanna hvaða áhrif hraunið hefur á mikilvægi innviði sem liggja ofan í jörðu og eru ofan hennar. Aldrei hafa slíkar rannsóknir verið gerðir áður. Innlent 1.8.2023 19:01 Endurlífguðu orm sem hafði verið frosinn í 46 þúsund ár Vísindamönnum hefur tekist að þíða og endurlífga þráðorma sem höfðu legið frosnir í síberískum sífrera í um 46 þúsund ár. Ormarnir eru taldir hafa verið uppi á ísöld, á sama tíma og loðfílar og sverðtígrar. Erlent 29.7.2023 09:28 Segir Ísland núna besta stað í heimi til að rannsaka eldgos Nýsjálenskur eldfjallafræðingur við Háskólann á Hawaii, sem kom sérstaklega til að fylgjast með Reykjaneseldum, segir Ísland besta stað í heimi um þessar mundir til að rannsaka eldgos. Hér gefist stórkostlegt tækifæri til að skýrari mynd af hraungosum. Innlent 26.7.2023 09:56 Steinbítur leyfði kafara að setja sýnatökupinna upp í sig Eftir covid-faraldurinn er landsmönnum eflaust flestum enn í minni hvernig var að láta stinga pinna upp í sig til sýnatöku. En hvernig skyldi steinbítur bregðast við slíku? Kafarinn Erlendur Bogason ákvað að prófa sömu aðferð til að ná DNA-sýni úr svokölluðum grábít til að fá úr því skorið hvort hann væri í raun steinbítur eða sérstök tegund. Innlent 22.7.2023 23:40 Nýtt lyf gegn Alzheimer's sagt marka tímamót Nýtt lyf er sagt marka tímamót í baráttunni gegn Alzheimer's sjúkdómnum eftir að niðurstöður lyfjarannsóknar gáfu til kynna að það hægi á hnignun heilans. Erlent 17.7.2023 16:48 Varnargalli úr kísilveri nýtist vel við eldgosarannsóknir Eins og flestir vita er hraunið sem nú kemur upp úr jörðinni við Litla-Hrút mjög heitt. Jarðvísindamenn þurfa þó að fara alveg upp að því til þess að taka mikilvæg sýni og þá er eins gott að vera klæddur góðum varnargalla. Innlent 14.7.2023 12:33 Heitasti staki dagurinn frá upphafi mælinga Bráðabirgðatölur benda til þess að mánudaginn 3. júlí hafi verið heitasti einstaki dagur á jörðinni frá því að mælingar hófust. Meðalhiti jarðar fór þá í fyrsta skipti yfir sautján gráður. Hlýindin eru að hluta til knúin af sterkum El niño-atburði í Kyrrahafinu. Erlent 5.7.2023 09:50 Bein útsending: Hljóta Íslendingar evrópsku nýsköpunarverðlaunin? Evrópsku nýsköpunarverðlaunin verða veitt í dag og kemur það þá í ljós hvort íslenskir vísindamenn hljóti þau. Sýnt er frá verðlaunaafhendingunni í beinni útsendingu frá Valencia á Spáni. Viðskipti innlent 4.7.2023 10:14 Fólk á suðvesturhorninu má búa sig undir reglulega jarðskjálfta Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að landrisið í Reykjanesskaga gæti breytt sýn fólks á eldstöðvakerfin. Sífellt styttist í næsta gos og íbúar megi búa sig undir að búa við jarðskjálfta. Innlent 3.7.2023 18:03 Evklíð ætlað að afhjúpa hulduöfl alheimsins Nýr evrópskur geimsjónauki sem verður skotið á loft í dag á að hjálpa vísindamönnum að skilja dulin og leyndardómsfull öfl sem halda vetrabrautum saman og valda sívaxandi útþenslu alheimsins. Athuganir hans gætu varpað ljósi á ýmsar brýnustu spurningar heimsfræðinnar. Erlent 1.7.2023 13:00 Heyrðu öldunið þyngdarbylgna sem ganga um alheiminn Alheimurinn er fullur af þyngdarbylgjum sem ganga um tímarúmið samkvæmt niðurstöðum fimmtán ára langrar og byltingarkenndrar rannsóknar alþjóðlegs hóps vísindamanna. Uppgötvunin á þessum þyngdarbylgjubakgrunni alheimsins er sögð hjálpa fræðimönnum að skilja hvernig vetrarbrautir myndast og þróast. Erlent 29.6.2023 09:30 Fann hornstein lífrænnar efnafræði í sólkerfi í fæðingu Kolefnissameind sem er talin hornsteinn lífrænnar efnafræði fannst í fyrsta skipti í fjarlægu sólkerfi sem er verða til með athugunum James Webb-geimsjónaukans. Rannsóknin á frumsólkerfisskífunni er einnig sögð sýna fram á þátt útfjólublárrar geislunar í lífvænleika nýrra sólkerfa. Erlent 27.6.2023 12:21 « ‹ 3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 52 ›
Telja sig hafa komist að því hvers vegna heilafrumurnar deyja Vísindamenn í Bretlandi og Belgíu telja sig hafa komist að því af hverju heilafrumur deyja í Alzheimersjúklingum. Dauði heilafrumanna hefur verið ráðgáta í marga áratugi en vonir eru bundnar við að uppgötvunin greiði fyrir þróun nýrra lyfja við sjúkdómnum. Erlent 15.9.2023 08:30
Hvetja ríki til að banna inngrip til að stýra veðuröflunum Climate Overshoot Commission, alþjóðleg nefnd sérfræðinga á sviði loftslagsmála, hvetur stjórnvöld heims til að heimila vísindarannsóknir á inngripum í náttúrulega ferla á borð við veðrabreytingar en banna framkvæmd þeirra. Erlent 14.9.2023 08:57
Möguleg vatnaveröld með kolefnissamböndum í lofti Stjörnufræðingar hafa fundið kolefnissameindir í andrúmslofti fjarreikistjörnu sem styrkir tilgátur um að þar kunni að vera haf fljótandi vatns. Einnig fundust óskýrari merki um að þar sé að finna efnasamband sem aðeins sjóþörungar mynda á jörðinni. Erlent 13.9.2023 09:35
Milljóna styrkhafi segir gullöld runna upp í stjarneðlisfræði Íslenskur stjarneðlisfræðingur sem hlaut meira en tvö hundruð milljóna króna evrópskan styrk fyrir rannsóknir sínar segir að gullöld sé runnin upp í stjarneðlisfræði. Rannsóknirnar eiga að varpa ljósi á uppruna Vetrarbrautarinnar okkar og hvernig frumefnin urðu til. Innlent 11.9.2023 08:21
Konur eru betri skurðlæknar en karlar Eru konur betri skurðlæknar en karlar? Þessa spurningu lögðu vísindamenn í Kanada og Svíþjóð upp með fyrir nokkrum misserum og nú hefur svarið verið birt. Já, þær virðast vera talsvert betri skurðlæknar. Erlent 10.9.2023 14:02
Hlýjasta sumarið á norðurhveli frá upphafi Sumarið á norðurhveli var það hlýjasta sem hefur nokkru sinni mælst. Ágúst var hlýjasti ágústmánuður á jörðinni frá upphafi mælinga og næsthlýjasti mánuðurinn á eftir júlí í sumar. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir heimsbyggðina standa frammi fyrir „loftslagshruni“. Erlent 6.9.2023 10:23
Krabbameinsgreiningum hjá yngri en 50 ára fjölgað um 80 prósent Einstaklingum sem greinast með krabbamein áður en þeir verða 50 ára fjölgaði um 79 prósent á árunum 1990 til 2019. Dauðsföllum af völdum krabbameins fjölgaði um 27 prósent í umræddum aldurshóp. Erlent 6.9.2023 07:27
Fær 215 milljóna króna styrk til að rannsaka málnotkun þingmanna Anton Karl Ingason, dósent í íslenskri málfræði og máltækni við Háskóla Íslands, hefur fengið 1,5 milljóna evra styrk, jafnvirði um 215 milljóna króna, frá Evrópska rannsóknaráðinu til verkefnis sem miðar að því að skýra hvernig málnotkun fólks breytist á lífsleiðinni. Þetta er stærsti styrkur sem fengist hefur til rannsókna á íslenskum málvísindum. Innlent 5.9.2023 10:00
Afskræmd umfjöllun um áhrif hvala í tengslum við loftslagsmálin Samkvæmt stöðu þekkingar sem við höfum öðlast fyrir tilstuðlan fjölda alþjóðlegra rannsókna vitum við að hvalir og önnur stór sjávardýr hafa vistmótandi áhrif á umhverfi sitt. Þeir styrkja vistferla og stuðla að heilbrigði vistkerfa. Skoðun 31.8.2023 11:00
Átta sentímetra ormur úr pýtonslöngu fjarlægður úr heila konu Taugaskurðlækninum Hari Priya Bandi brá heldur betur í brún þegar hún fann átta sentímetra langan hringorm í framheila konu á sjúkrahúsi í Canberra í Ástralíu. Erlent 29.8.2023 07:15
Örlítið hækkuð gildi stórauka líkurnar á hjartaáföllum og dauða Einstaklingar á miðjum aldri sem eru í yfirþyngd og með örlítla blóðþrýstings-, kólesteról- eða blóðsykurshækkun eru þrefalt líklegri að deyja fyrir aldur fram en aðrir. Þá eru þeir 35 prósent líklegri til að fá hjartaáfall og heilablóðfall og upplifa þau tveimur árum fyrr en jafnaldrar þeirra. Erlent 25.8.2023 07:20
Rannsaka hvort þyngdarstjórnunarlyf gagnast gegn ýmsum sjúkdómum Vísindamenn hyggjast rannsaka hvort sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyf sem innihalda semaglutide geta hjálpað einstaklingum sem þjást af sjúkdómum á borð við fíkn og vitglöp. Erlent 21.8.2023 08:11
Svínsnýra með fulla virkni eftir mánuð í heiladauðum manni Svínsnýra sem var grætt í heiladauðan mann fyrir meira en mánuði síðan virkar enn og stefnt er að því að fylgjast með þróun mála í að minnsta kosti mánuð til viðbótar. Sérfræðingur segir nýrað starfa jafnvel enn betur en nýra úr manneskju. Erlent 17.8.2023 10:16
Vantrúaður á yfirlýsingar um byltingarkenndan ofurleiðara Prófessor í eðlisfræði segist vantrúaður á nýlegar fullyrðingar kóreskra vísindamanna um að þeir hafi fundið nýja tegund ofurleiðara sem vakið hafa mikla athygli. Uppgötvun á ofurleiðara við stofuhita gæti valdið gríðarlegum tækniframförum. Erlent 13.8.2023 08:01
Óhlýðni mýeinda hvarf ekki við enn nákvæmari mælingar Öreindafræðingar í Bandaríkjunum segja að hegðun svonefndra mýeinda ögri enn heimsmynd eðlisfræðinnar í nákvæmustu mælingum þeirra til þessa. Yrðu niðurstöður þeirra staðfestar gæti það bent til tilvistar áður óþekktrar víxlverkunar eða náttúrulögmáls. Erlent 11.8.2023 11:35
Kanna hvort fleira eigi þátt í methita Vísindamenn skoða nú möguleikann á því hvort að fleiri þættir en loftslagsbreytingar af völdum manna og El niño-veðurfyrirbrigðið beri ábyrgð á fordæmalausum hita í sumar. Risaeldgos í Kyrrahafi og minni skipamengun er á meðal þess sem kemur til greina. Erlent 9.8.2023 11:08
Segir hugmyndir Google aðför að höfundaréttinum Forsvarsmenn Google hafa lagt til að breytingar verði gerðar á höfundaréttarlögum til að heimila fyrirtækjum að mata gervigreind á öllum texta sem fyrirfinnst á netinu. Ef útgefendur vilja ekki að efni þeirra sé notað verði það undir þeim komið að láta vita. Erlent 9.8.2023 08:18
Stefnir í hlýjasta árið frá upphafi eftir funheita sumarmánuði Vaxandi líkur er á því að árið í ár verði það hlýjasta frá upphafi mælinga eftir fordæmalaust heita júní- og júlímánuði. Veðurfyrirbrigðið El niño í Kyrrahafi og hnattræn hlýnun af völdum manna leggjast nú á eitt um að þrýsta meðalhita jarðar upp í nýjar hæðir. Erlent 8.8.2023 09:32
Rannsaka áhrif hraunsins á innviði undir og yfir yfirborði Vísindamenn við Háskóla Íslands bíða þess nú að hraun renni yfir tilraunasvæði nærri Litla-Hrút en þar á að kanna hvaða áhrif hraunið hefur á mikilvægi innviði sem liggja ofan í jörðu og eru ofan hennar. Aldrei hafa slíkar rannsóknir verið gerðir áður. Innlent 1.8.2023 19:01
Endurlífguðu orm sem hafði verið frosinn í 46 þúsund ár Vísindamönnum hefur tekist að þíða og endurlífga þráðorma sem höfðu legið frosnir í síberískum sífrera í um 46 þúsund ár. Ormarnir eru taldir hafa verið uppi á ísöld, á sama tíma og loðfílar og sverðtígrar. Erlent 29.7.2023 09:28
Segir Ísland núna besta stað í heimi til að rannsaka eldgos Nýsjálenskur eldfjallafræðingur við Háskólann á Hawaii, sem kom sérstaklega til að fylgjast með Reykjaneseldum, segir Ísland besta stað í heimi um þessar mundir til að rannsaka eldgos. Hér gefist stórkostlegt tækifæri til að skýrari mynd af hraungosum. Innlent 26.7.2023 09:56
Steinbítur leyfði kafara að setja sýnatökupinna upp í sig Eftir covid-faraldurinn er landsmönnum eflaust flestum enn í minni hvernig var að láta stinga pinna upp í sig til sýnatöku. En hvernig skyldi steinbítur bregðast við slíku? Kafarinn Erlendur Bogason ákvað að prófa sömu aðferð til að ná DNA-sýni úr svokölluðum grábít til að fá úr því skorið hvort hann væri í raun steinbítur eða sérstök tegund. Innlent 22.7.2023 23:40
Nýtt lyf gegn Alzheimer's sagt marka tímamót Nýtt lyf er sagt marka tímamót í baráttunni gegn Alzheimer's sjúkdómnum eftir að niðurstöður lyfjarannsóknar gáfu til kynna að það hægi á hnignun heilans. Erlent 17.7.2023 16:48
Varnargalli úr kísilveri nýtist vel við eldgosarannsóknir Eins og flestir vita er hraunið sem nú kemur upp úr jörðinni við Litla-Hrút mjög heitt. Jarðvísindamenn þurfa þó að fara alveg upp að því til þess að taka mikilvæg sýni og þá er eins gott að vera klæddur góðum varnargalla. Innlent 14.7.2023 12:33
Heitasti staki dagurinn frá upphafi mælinga Bráðabirgðatölur benda til þess að mánudaginn 3. júlí hafi verið heitasti einstaki dagur á jörðinni frá því að mælingar hófust. Meðalhiti jarðar fór þá í fyrsta skipti yfir sautján gráður. Hlýindin eru að hluta til knúin af sterkum El niño-atburði í Kyrrahafinu. Erlent 5.7.2023 09:50
Bein útsending: Hljóta Íslendingar evrópsku nýsköpunarverðlaunin? Evrópsku nýsköpunarverðlaunin verða veitt í dag og kemur það þá í ljós hvort íslenskir vísindamenn hljóti þau. Sýnt er frá verðlaunaafhendingunni í beinni útsendingu frá Valencia á Spáni. Viðskipti innlent 4.7.2023 10:14
Fólk á suðvesturhorninu má búa sig undir reglulega jarðskjálfta Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að landrisið í Reykjanesskaga gæti breytt sýn fólks á eldstöðvakerfin. Sífellt styttist í næsta gos og íbúar megi búa sig undir að búa við jarðskjálfta. Innlent 3.7.2023 18:03
Evklíð ætlað að afhjúpa hulduöfl alheimsins Nýr evrópskur geimsjónauki sem verður skotið á loft í dag á að hjálpa vísindamönnum að skilja dulin og leyndardómsfull öfl sem halda vetrabrautum saman og valda sívaxandi útþenslu alheimsins. Athuganir hans gætu varpað ljósi á ýmsar brýnustu spurningar heimsfræðinnar. Erlent 1.7.2023 13:00
Heyrðu öldunið þyngdarbylgna sem ganga um alheiminn Alheimurinn er fullur af þyngdarbylgjum sem ganga um tímarúmið samkvæmt niðurstöðum fimmtán ára langrar og byltingarkenndrar rannsóknar alþjóðlegs hóps vísindamanna. Uppgötvunin á þessum þyngdarbylgjubakgrunni alheimsins er sögð hjálpa fræðimönnum að skilja hvernig vetrarbrautir myndast og þróast. Erlent 29.6.2023 09:30
Fann hornstein lífrænnar efnafræði í sólkerfi í fæðingu Kolefnissameind sem er talin hornsteinn lífrænnar efnafræði fannst í fyrsta skipti í fjarlægu sólkerfi sem er verða til með athugunum James Webb-geimsjónaukans. Rannsóknin á frumsólkerfisskífunni er einnig sögð sýna fram á þátt útfjólublárrar geislunar í lífvænleika nýrra sólkerfa. Erlent 27.6.2023 12:21