Handbolti

Ó­farir Magdeburg í Meistara­deildinni halda á­fram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson og félagar í Magdeburg misstu tökin á leiknum gegn Nantes í seinni hálfleik.
Gísli Þorgeir Kristjánsson og félagar í Magdeburg misstu tökin á leiknum gegn Nantes í seinni hálfleik. getty/Ronny Hartmann

Fátt gengur upp hjá Magdeburg í Meistaradeild Evrópu en í kvöld tapaði liðið fyrir Nantes, 29-28, á útivelli.

Þetta var fyrsti leikur Magdeburg eftir að Ómar Ingi Magnússon meiddist illa á ökkla. Hverfandi líkur er á að hann verði með íslenska landsliðinu á HM en Magdeburg gaf út að hann yrði frá í þrjá mánuði.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Magdeburg sem var með fjögurra marka forskot í hálfleik, 11-15. Nantes var hins vegar sterkari aðilinn í seinni hálfleik, náði frumkvæðinu og landaði eins marks sigri, 29-28.

Magdeburg er í 6. sæti B-riðils Meistaradeildarinnar með sjö stig. Nantes er í 2. sætinu með þrettán stig.

Viktor Gísli Hallgrímsson varði sex af þeim fjórtán skotum sem hann fékk á sig þegar Wisla Plock tapaði fyrir Eurofarm Pelister, 21-18. Varnarleikur og markvarsla liðanna var góð en sóknarleikurinn ekki uppi á marga fiska eins og lokatölurnar gefa til kynna.

Wisla Plock er í 7. sæti A-riðils með fjögur stig en Eurofarm Pelister er sæti ofar með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×