Fótbolti

Enska lands­liðið fær ekki að spila á Wembl­ey

Smári Jökull Jónsson skrifar
Harry Kane og Jude Bellingham þurfa að færa sig á nýjan heimavöll í september.
Harry Kane og Jude Bellingham þurfa að færa sig á nýjan heimavöll í september. Vísir/Getty

Wembley leikvangurinn í Lundúnum hefur verið heimavöllur enska landsliðsins í knattspyrnu svo lengi sem elstu menn muna. Þegar liðið mætir Andorra í undankeppni HM í haust munu þeir hins vegar þurfa að finna annan heimavöll.

Undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu árið 2026 hefst í mars á næsta ári og lýkur ári síðar með umspilsleikjum. Enska landsliðið dróst í riðil ásamt Serbíu, Albaníu, Lettlandi og Andorra og ættu að eiga greiða leið á heimsmeistaramótið sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada sumarið 2026.

Þegar enska liðið mætir Andorra í september á næsta ári munu þeir hins vegar ekki spila á Wembley eins og þeir nær oftast gera.

Ástæðan er sú að hljómsveitin Coldplay er með fyrirhugaða tónleika á leikvanginum á sama tíma og eftir að fleiri tónleikum var bætt við sökum gríðarlegrar eftirspurnar var ljóst að landsliðið þyrfti að finna nýjan heimavöll. Síðustu tónleikar hljómsveitarinnar fara fram þann 8. september en leikurinn gegn Androra er á dagskrá tveimur dögum fyrr.

Engir tónleikar eru fyrirhugaðir sama dag og leikurinn fer fram en tónleikahaldið krefst töluverðra framkvæmda á vellinum og ekki verður hægt að gera hann tilbúinn fyrir knattspyrnuleik á milli tónleika.

Enska liðið þarf því líklega að leita að heimavelli fyrir utan höfuðborgina og er líklegast að St. James Park í Newcastle, Stadium of Light í Sunderland eða Old Trafford í Manchester verði fyrir valinu sem heimavöllur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×