Ofnæmisviðbrögð vegna katta algeng 9. júlí 2007 09:00 Fleiri en þeir sem hafa ofnæmi fyrir köttum sýna ofnæmisviðbrögð við þeim.
Rannsókn vísindamanna við The Imperial College í Lundúnum sýnir að ekki aðeins þeir sem hafa ofnæmi fyrir köttum sýni við þeim ofnæmisviðbrögð sem líkjast astma á byrjunarstigi. Susan Chinn, einn af vísindamönnunum, tjáir fréttavef BBC að þessi niðurstaða bendi til þess að það gæti komið sér vel fyrir marga sem ekki hafa kattaofnæmi að komast sjaldnar í snertingu við þá. Vísindamennirnir rannsökuðu tæplega tvö þúsund manns og heimili þeirra víðs vegar um Evrópu. Þeir tóku blóðsýni úr fólkinu til að leita að mótefnum sem kallast IgE sem eru merki um ýmis ofnæmisviðbrögð. Einnig tóku þeir ryksýni af heimilum fólksins og leituðu að rykmaurum í þeim og efnum sem valda til dæmis katta- og frjókornaofnæmi. Niðurstaðan í rannsókninni var sú að fjórðungur þátttakendanna sýndi ofnæmisviðbrögð við efnum sem valda kattaofnæmi, einkum öndunartruflanir. En einungis fimmtán prósent þeirra manna sem voru rannsakaðir eru strangt til tekið með ofnæmi fyrir köttum. Að mati Chinn er þetta áhugavert vegna þess að ekki var búist við því að fólk sem ekki hefur kattaofnæmi myndi sýna ofnæmisviðbrögð við þeim.
Vísindi Mest lesið Ekki ákærður fyrir manndráp í Kiðjabergi Innlent Síðastliðin tvö ár verið „alveg skelfileg“ Innlent Synir konunnar lýsa andláti hennar sem létti Innlent Tveir fréttamenn RÚV söðla um Innlent Gera hlé á leitinni í Tálknafirði Innlent Hellti bensíni og bar eld að bílum í Kópavogi Innlent Viðgerð lokið og rafmagn aftur á í Vík Innlent Ikea sakað um grænþvott: „Slökkvið á myndavélunum“ Erlent Framúrskarandi Íslendingur sendur úr landi Innlent Daníel fær 24 ára dóm til viðbótar fyrir barnaníð Erlent Fleiri fréttir Forstjóri FBI hyggst stíga til hliðar Sífellt fleiri hoppa fyrir bíla í Afríku Uppreisnarleiðtogar funduðu í fyrsta sinn Skrifaði um að drepa „baunateljara“ Daníel fær 24 ára dóm til viðbótar fyrir barnaníð Eldsprengjur GRU hefðu getað grandað flugvélum DHL Ikea sakað um grænþvott: „Slökkvið á myndavélunum“ Áratugi í fangelsi fyrir að ráðast á dómara Spá veikri og skammlífri „stelpu“ í Kyrrahafi Þingmaður myrtur í Mexíkó Reyndi að svipta sig lífi í varðhaldi Dómari stöðvar sölu Infowars til The Onion Eiga yfir höfði sér dauðadóm fyrir að hylja ekki hár sitt Boða tíma „stöðugleika og friðar“ Öskraði þegar hann var leiddur í dómsal Féll í gólfið í hádegispásu í þinghúsinu „Síðasta manneskjan sem mann myndi nokkurn tímann gruna“ Fórnarlömb „TikTok-mannsins“ skáluðu í kampavíni Varar Repúblikana við að standa í vegi hans og Trumps Draga tennurnar úr næstu ríkisstjórn Sýrlands Öngþveiti við „sláturhús“ Assads Forseti Brasilíu á gjörgæslu eftir heilaaðgerð Ákærður fyrir morð í New York Netanjahú ber vitni í spillingarmáli sínu Nóbelsverðlaunahafar mótmæla útnefningu Kennedy Fær ekki að breyta skilmálum fjölskyldusjóðsins Erlend ríki keppast við að tryggja hagsmuni sína í Sýrlandi Þetta er maðurinn sem er grunaður um launmorðið Í skýrslutöku í tengslum við morðið í New York Norski hryðjuverkamaðurinn telur brotið á sér í fangelsi Sjá meira